Voru í húsi á Súðavík þar sem búseta er bönnuð
Við eftirlit lögreglunnar á Vestfjörðum í gærkvöldi í Súðavík virtist sem haldið væri til í húsi í gamla hluta þorpsins en þar gildir kvöð sem bannar búsetu í íbúðarhúsum frá og með 1. nóvember ár hvert til og með 30. apríl næsta árs.
Kvöðin gildir víðar yfir húsnæði á hættusvæðum og er bæði ætlað að stuðla að öryggi fólks og að létta álagi af Veðurstofu Íslands og almannavarnakerfinu ef til hættuástands kemur með því að tryggja að enginn haldi þá til á slíkum svæðum.
Við nánari athugun kom í ljós að haldið var til í húsinu af hálfu einstaklinga sem virðast hafa húsið á leigu af eiganda þess, að því er kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗