Þessu áttu að hætta að gera fyrir flug

Það borgar sig ekki endilega að pissa fyrir flug og hætta svo að drekka. mbl.is/Thinkstockphotos

Það að stíga upp í flugvél fylgir mikill undirbúningur, allt frá því að finna til vegabréfið yfir í að fá sér að borða og fara á klósettið. Það eru hins vegar ekki allir sammála um það hvort að fólk eigi að fara á klósettið fyrir flug, sérstaklega ef fólk þarf ekki að pissa. 

Á ferðavefnum Travel and Leisure er farið yfir af hverju fólk ætti að hætta því að taka öryggispiss fyrir flug. Þar er greint frá könnun sem ferðatryggingafélag, sem sérhæfir sig í tryggingum fyrir fólk með heilsufarsvandamál lét gera. Þar kom fram að nærri 73 prósent breskra ferðalanga, 63 prósent karla og 81 prósent kvenna, fara á klósettið fyrir flug, jafnvel þótt þeim finnist þeir ekki þurfa þess.

Rúmlega þrír af hverjum fjórum eða 76 prósent ferðalanga 55 ára og eldri fara á klósetti til öryggis fyrir flug. Í hópnum 18 til 24 ára voru það 62 prósent sem fóru á klósettið til öryggis. Auk þess sögðust 59 prósent ferðalanga forðast að drekka vökva til að þurfa ekki að nota klósettið um borð í flugvélinni.

Gerir meira ógagn en gagn

Það að fara á klósettið til öryggis gæti það gert meira ógagn en gagn. 

„Kvíði magnar líkamlegar tilfinningar verulega upp. Þegar óvíst virðist hvort fólk komist á klósett við að ganga um borð, í ókyrrð eða þegar það er kveikt á sætisbeltaljósinu fylgist það nánar með þvagblöðrunni. Tilfinning sem það myndi varla taka eftir heima getur skyndilega virst knýjandi,“ sagði dr. Grigorios Kyriazis, sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningu.

Að sögn Kyriazis er ekki skaðlegt að fara stöku sinnum á klósettið til öryggis, en að fara ítrekað þegar mjög lítið er í þvagblöðrunni getur hins vegar orðið að viðverandi vandamáli.  Einnig er varað við því að forðast að drekka vökva á ferðalagi. Það getur meðal annars valdið óþægindum á borð við höfuðverk, svima, þreytu, hægðatregðu. 

Það þarf að huga að mörgu fyrir flug. Ekki bara að muna eftir vegabréfi og töskunum. Ljósmynd/Colourbox

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅