„Við skoðum sjáanlegar skemmdir og leitum að ummerkjum um myglu“

Skúli Sigurðsson rekstrarverkfræðingur sinnir ástandsskoðunum fasteigna hjá Sérskoðun.

Skúli Sigurðsson rekstrarverkfræðingur sinnir ástandsskoðunum fasteigna hjá Sérskoðun. Samsett mynd

Snyrtilegt yfirborð segir ekki alla söguna um ástand fasteignar. En hvað getur ástandsskoðun leitt í ljós og hvenær er ástæða til að kalla til fagmann? Feðgarnir hjá Sérskoðun, Sigurður J. Jónsson, húsasmíðameistari, byggingarstjóri og dómkvaddur matsmaður, og Skúli Sigurðsson rekstrarverkfræðingur, þekkja það vel. Skúli sagði okkur frá ástandsskoðunum og mikilvægi þeirra.

Ástandsskoðun er fagleg úttekt á fasteign, í heild eða að hluta, sem hefur það að markmiði að draga fram raunverulegt ástand hennar.

„Við skoðum sjáanlegar skemmdir, mælum raka, leitum að ummerkjum um myglu og metum ástand glugga, glers og hurða. Við skoðum einnig innra og ytra byrði hússins og þakið, að innan og utan þar sem aðstæður leyfa. Við notum rakamæla og hitamyndavél til að kanna meðal annars kuldabrýr og vísbendingar um leka eða raka sem sjást ekki með berum augum. Ef grunur vaknar um myglu er hægt að taka sýni. Einnig er hægt að bæta við myndun pípulagna, skoðun raflagna og kostnaðarmati.“

Að sögn Skúla tekur slík skoðun yfirleitt 45-90 mínútur og ræður ástand eignarinnar meiru um tímann en stærð hennar.

Skúli leggur áherslu á að skoðunin sé einnig tækifæri fyrir kaupanda til að kynna sér ástand eignarinnar og fá svör við spurningum. „Við mælum eindregið með því að viðskiptavinur sé viðstaddur, því þá er hægt að spyrja jafnóðum og sjá vandamálin með eigin augum. Niðurstöðurnar berast í skýrslu eða samantekt innan þriggja daga. Innifalið er líka símtal eftir á þar sem við förum yfir spurningar sem kunna að vakna.“

Skúli bendir á að viðhaldssaga eignar og hvernig staðið hafi verið að framkvæmdum geti gefið tilefni til nánari skoðunar.

„Ef viðhaldssagan er óljós eða framkvæmdir hafa verið unnar án aðkomu löggiltra fagmanna er sérstaklega mikilvægt að kanna ástand eignarinnar. Þetta á ekki síst við þegar fólk stendur frammi fyrir því að kaupa eða selja fasteign. Ef eigin þekking á byggingum er takmörkuð er skynsamlegt að fá fagaðila til að meta ástandið og kanna hvort einhverjir vankantar fyrirfinnist.“

Op milli gluggakarms og múrverks veitir vatni greiða leið inn og getur valdið skemmdum. Ljósmynd/Aðsend

Það sem leynist undir yfirborðinu

Rakavandamál séu algengust þeirra vandamála sem komi í ljós við skoðun. Þar geti verið um að ræða leka með gluggum, rakaskemmdir í kjöllurum og útveggjum eða ófullnægjandi vatnsvörn í baðherbergjum. Gluggar og gler séu einnig oft komin á tíma án þess að það sjáist í fljótu bragði.

„Vandamál í þökum, sérstaklega flötum þökum og þakköntum, og múr- og steypuskemmdir á ytra byrði eru líka algeng. Í eldri húsum eru frárennslislagnir oft orðnar lélegar og það er yfirleitt ekki hægt að sjá nema með myndun.“

Skúli segir einkum tvennt koma kaupendum á óvart: ástand nýuppgerðra eigna og kostnað við framkvæmdir sem lítið beri á.

„Nýuppgerð eign getur verið í verra ástandi en hún lítur út fyrir, því falleg yfirborðsvinna segir ekkert um það sem er undir. Svo kemur fólki oft á óvart hversu mikill kostnaður getur legið í hlutum sem sjást ekki, eins og skólplögn, drenlögn og þaki.“

Raki mældur í gluggakarmi. 7–16,9% telst eðlilegt, 17–19,9% rakt og 20–99,9% blautt. Ljósmynd/Aðsend

Niðurstöðurnar nýtast við ákvarðanir og viðhald

Niðurstöður ástandsskoðunar gefi viðskiptavini góða mynd af eigninni en það sé hans að ákveða hvernig hann nýti þær. Sumir falli frá kaupum en aðrir haldi áfram með skýrari vitneskju um það sem þurfi að gera. Í sumum tilvikum séu niðurstöðurnar nýttar í samningum við seljanda.

„Við verðmetum ekki eignir og ráðleggjum ekki hvort kaupa eigi eða ekki. Við getum hins vegar útbúið kostnaðarmat í framhaldi af ástandsskoðun, byggt á þeim atriðum sem komu þar fram, sem kaupandi getur svo nýtt sem rökstuðning. Dæmi eru um að seljendur hafi tekið á sig kostnað vegna galla sem kaupandi gat ekki séð við venjulega skoðun.“

Skúli segir best að gera kauptilboð með fyrirvara um ástandsskoðun. Skýrslan geti jafnframt nýst sem viðhaldsáætlun fyrir næstu ár, þar sem atriðum sé forgangsraðað eftir því hvað þurfi að gera strax og hvað megi bíða.

Hvað ættu kaupendur að hafa í huga?

Aðspurður hvað kaupendur ættu að skoða og spyrja um þegar þeir kynna sér fasteign segir Skúli að þeir geti sjálfir hugað að ýmsu. Hann nefnir glugga og gler og hvort rakablettir séu þar í kring. Einnig sé gott að veita nýmáluðum blettum athygli, þar sem þeir geti verið vísbending um að verið sé að hylja eitthvað. Á ytra byrði hússins megi meðal annars skoða sprungur, flagnandi múr og þakkanta.

„Spyrjið hvenær lagnir, gluggar, þak og rafmagn voru síðast endurnýjuð og biðjið um gögn því til staðfestingar. Það er líka gott að spyrja beint hvort seljandi viti um leka eða galla.“

Hann leggur þó áherslu á að skoðun kaupanda komi ekki í stað faglegrar skoðunar. „Margt af því sem skiptir mestu máli sést aðeins með mælitækjum og reynslu.“

Vatnið finnur sér alltaf leið og á þessari mynd má sjá að það sprengdi út múrinn. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅