Sendi vinum klúrar myndir af sofandi eiginkonu – Endaði geltur og nærri afhöfðaður
Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 16. nóvember 2026 08:30
Allana Brittes og eiginmaður hennar í dag sem varð vitni að morðinu.
Daniel Corrêa Freitas, 24 ára brasilískur knattspyrnumaður sem lék meðal annars með São Paulo og Botafogo, var myrtur á hrottalegan hátt árið 2018 eftir afmælisveislu í Curitiba í Brasilíu.
Allana Brittes, dóttir morðingjans, rifjaði upp atburðarásina í sjónvarpsviðtal. Hún var að halda upp á átján ára afmælið sitt á skemmtistað þegar vinir hennar mættu óboðnir heim til fjölskyldunnar með knattspyrnumanninn í för.
Corrêa fór inn í svefnherbergi foreldra hennar þar sem móðir hennar, Cristiana Brittes, svaf. Hann tók myndir af sér við hlið hennar og sendi vinum á WhatsApp. Í skilaboðum gortaði hann af því að ætla að sofa hjá móður afmælisbarnsins þótt eiginmaður hennar væri á staðnum.
Ein vinkona Allönu hafði áður kvartað undan því að Corrêa væri ágengur og snerti hana gegn vilja hennar.
Myndin umrædda sem hann sendi vinum á WhatsApp
Cristiana sagði síðar að Corrêa hefði brotið gegn sér kynferðislega, meðal annars klætt sig úr buxunum og nuddað kynfærum sínum við hana á meðan hann tók myndir.
Edison Luiz Brittes Júnior, eiginmaður hennar og faðir Allönu, kom að þeim í herberginu og réðst á knattspyrnumanninn með aðstoð annarra.
Corrêa var barinn, settur í skott bifreiðar og fluttur í skóglendi þar sem lík hans fannst. Hann hafði verið skorinn svo djúpt á háls að höfuðið var nærri skilið frá búknum.
Edison játaði síðar morðið og hlaut rúmlega 42 ára fangelsisdóm. Cristiana var dæmd fyrir að spilla sönnunargögnum.
Allana er nú gift David Vollero, sem varð vitni að atburðunum og tók að hennar sögn þátt í barsmíðunum, en var sýknaður af morði.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗