Bóklestur tekur við sér: 64 mínútur á dag
Íslendingar verja að jafnaði 64 mínútum á dag í að lesa og/eða hlusta á bækur, samanborið við 59 mínútur í fyrra, samkvæmt nýrri lestrarkönnun Miðstöðvar íslenskra bókmennta.
Niðurstöður úr nýrri lestrarkönnun meðal Íslendinga 18 ára og eldri sýna að bóklestur hefur tekið við sér eftir samdrátt í fyrra. Færri segjast ekki lesa neinar bækur, að því er kemur fram í tilkynningu frá Miðstöð íslenskra bókmennta.
Notkun bókasafna hefur ekki mælst meiri síðan árið 2019 og fleiri fá bækur lánaðar. Konur lesa áfram mun meira en karlar og rúmur helmingur fólks á aldrinum 18 til 24 ára segist lesa minna en fyrir fimm árum.
Að jafnaði lesa Íslendingar rétt yfir tvær bækur á mánuði, sem er svipað og undanfarin ár. Hlutfall þeirra sem ekki hafa lesið neina bók síðustu 30 daga lækkar úr 37% í 33% og lestur hefðbundinna bóka eykst á ný, en 32% lesa hefðbundnar bækur vikulega eða oftar samanborið við 28% í fyrra.
Rúmur helmingur þeirra sem lesa er með áskrift að hljóðbókaveitu og 39% fá bækur lánaðar á bókasafni, samanborið við 30% í fyrra.
Meirihluti þjóðarinnar, eða 59%, les oftar eða eingöngu á íslensku en 23% oftar eða einungis á öðru tungumáli.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗