Verðlaunahafi á ÓL í langt bann

Bozhidar Dimitrov Andreev er kominn í langt bann.

Bozhidar Dimitrov Andreev er kominn í langt bann. Ljósmynd/Ólympíuleikarnir

Búlgarski lyftingamaðurinn Bozhidar Dimitrov Andreev, sem vann brons á Ólympíuleikunum í París 2024, hefur verið dæmdur í fjögurra ára keppnisbann vegna lyfjamisnotkunar.

Hinn 29 ára gamli lyftingamaður féll á lyfjaprófi vegna vefaukandi sterans mesterolóns í sýni sem tekið var utan keppni 15. október 2025.

Bannið gildir til 17. nóvember 2029, sem þýðir að hann missir af Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028. Bronsverðlaun hans í 73 kg flokki í París standa óhögguð.

Andreev, sem varð einnig Evrópumeistari árin 2019 og 2024, getur áfrýjað ákvörðuninni til Alþjóðaíþróttadómstólsins (CAS).

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅