FDA samþykkir umsókn Oculis
Alþjóðlega líftæknifyrirtækið Oculis Holding AG tilkynnti í dag að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefði samþykkt IND-umsókn félagsins vegna Privosegtor til meðferðar við bráðum köstum MS-sjúkdóms.
Samþykki FDA kemur í kjölfar endurgjafar frá taugalækningadeild-2 hjá FDA í aðdraganda IND-umsóknar, þar sem staðfest var að Oculis væri heimilt að vísa til gagna úr fyrirliggjandi IND-umsókn félagsins vegna Privosegtor á sviði augnlækninga, að því er kemur fram í tilkynningu.
FDA lýsti jafnframt stuðningi við fyrirhugaða klíníska þróunaráætlun sem tæki bæði til sjúklinga með MS-sjúkdóm sem fá sjóntaugabólgu (ON), sem og sjúklinga sem fá annars konar köst, svo sem köst sem hafa áhrif á göngugetu.
Áætlunin gerir ráð fyrir að aðalviðmið (e. primary endpoint) rannsóknarinnar verði metið strax eftir þrjá mánuði frá upphafi meðferðar og að notaður verði sami skammtur og í PIONEER-1 rannsókninni, þ.e. 3 mg/kg daglega í fimm daga.
Sjóntaugabólga er algeng bæði sem fyrsta klíníska einkenni MS-sjúkdóms og í tengslum við bráð köst sjúkdómsins. Hún er því meinalífeðlisfræðilegt líkan (e. pathophysiological model) fyrir bráða afmýlingu (e. acute demyelination) sem mögulega má yfirfæra á önnur bráð köst MS-sjúkdóms.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗