Arnar: Mjög merkur maður fallinn frá

Arnar Gunnlaugsson minntist Guðjóns Þórðarsonar, sveitunga síns.

Arnar Gunnlaugsson minntist Guðjóns Þórðarsonar, sveitunga síns. Ljósmynd/Alex Nicodim

„Af tíu bestu stundunum á mínum ferli eru örugglega fjórar eða fimm mjög tengdar honum,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, um Guðjón Þórðarson á blaðamannafundi í gær.

Guðjón, sem lést á föstudaginn var, þjálfaði Arnar bæði hjá félagsliðum og íslenska landsliðinu.

„Það eru tveir titlar með Stoke, landsleikurinn hérna á móti Frökkum, titlarnir með Skagamönnum og svo framvegis. Þetta er goðsögn í okkar íþrótt. Það er mjög merkur maður fallinn frá.“

Guðjóns verður minnst fyrir leik Íslands og Lúxemborgar á Laugardalsvelli á morgun. Þá kveður Aron Einar Gunnarsson landsliðið.

„Þetta verður tilfinningaþrungið kvöld, bæði vegna Guðjóns og Arons. Við þurfum að passa að hafa tilfinningarnar rétt stilltar en njóta stundarinnar og gefa Aroni og Guðjóni góðan sigur í farteskið.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅