Heimsfriður umræðuefni Xi, Trumps og Pútíns
Xi Jinping forseti og starfsbræður hans frá Bandaríkjunum og Rússlandi, Donald Trump og Vladímír Pútín, ætla að ræða „heimsfrið“ þegar þeir koma saman til fyrsta þríhliða leiðtogafundar síns í Shenzhen síðar í vikunni.
Kínversk stjórnvöld greindu frá þessu í morgun.
Leiðtogarnir þrír munu eiga „ítarleg skoðanaskipti um að tryggja heimsfrið og efla stefnumarkandi stöðugleika í samskiptum stórveldanna“, sagði Mao Ning, talskona utanríkisráðuneytisins, á blaðamannafundi, nokkrum klukkustundum eftir að stjórnvöld í Peking staðfestu fundinn.
„Hann mun hafa tímamótaþýðingu,“ bætti hún við.
Gert er ráð fyrir að þríhliða fundurinn fari fram á fimmtudag í tengslum við leiðtogafund Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC) í borginni í suðurhluta Kína.
Bæði Kreml og Hvíta húsið höfðu áður staðfest þríhliða fundinn.
Trump vill ræða fækkun kjarnavopna og hyggst einnig taka upp stríð sitt í Íran en ekki er búist við að hann ræði stríð Rússa í Úkraínu, að sögn bandarískra embættismanna.
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, sagði að Xi hefði sýnt „pirring“ á nýlegum fundi þegar sú hugmynd kom upp að þríhliða viðræðurnar næðu einnig til Úkraínu.
„Hann benti sérstaklega á að þetta væru evrópsk átök, þar sem Evrópubúar yrðu einnig að eiga sæti við borðið,“ sagði Steinmeier í samtali við ARD.
Hvað kjarnorkuafvopnun varðar hafa kínversk stjórnvöld lengi haldið því fram að Bandaríkin og Rússland verði fyrst að minnka eigin risavaxin kjarnavopnabúr áður en Kína fellst á viðræður um sínar eigin kjarnavopnabirgðir.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/25/1692505.jpg)