Sigríður vill ekki vísa Albananum úr landi strax – Vill að sakamálið verði útkljáð fyrst

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Mánudaginn 16. nóvember 2026 08:00

Sigríður Andersen. Skjáskot RÚV.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir ekki koma á óvart að kærunefnd útlendingamála hafi fellt úr gildi ákvörðun um brottvísun albansks ríkisborgara sem dæmdur var fyrir manndráp og vopnalagabrot í heimalandi sínu.

Maðurinn hefur jafnframt ítrekað brotið gegn íslenskum útlendingalögum og er nú grunaður um kynferðisbrot gegn barni hér á landi, eins og DV greindi frá á föstudag.

Sjá einnig: Framdi morð og sakaður um kynferðisbrot gegn barni en fær að vera áfram á Íslandi

Úrskurðurinn hefur vakið töluverð viðbrögð á samfélagsmiðlum.

Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Sigríður að skilyrði brottvísunar samkvæmt gildandi lögum séu þröng og að kærunefndin hafi töluvert svigrúm til mats.

„Þegar menn eru búnir að afplána sinn dóm þá eru þeir búnir að afplána. Dómur einn og sér getur samkvæmt lögunum ekki varðað brottvísun,“ segir hún og telur nauðsynlegt að skýra lögin betur.

Sigríður telur að fremur hefði verið hægt að byggja brottvísun á ítrekuðum brotum mannsins gegn útlendingalögum, meðal annars vegna ólöglegrar dvalar og brots gegn endurkomubanni.

Hún telur þó ekki rétt að vísa manninum úr landi að svo stöddu, enda sé meint kynferðisbrot gegn barni enn til rannsóknar hjá héraðssaksóknara.

„Maður þarf samt að staldra við og hugsa hvort það sé eðlilegt að brottvísa honum ef hann hefur brotið af sér áður en við réttum yfir honum. Dómsmálaráðherra er farinn að hleypa mönnum úr fangelsi og henda þeim úr landi en vill fólk ganga lengra og ekki einu sinni dæma menn heldur bara henda þeim úr landi?“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅