Tveggja bíla árekstur á Bústaðavegi
Lögreglunni á Hverfisgötu barst tilkynning um tveggja bíla árekstur á Bústaðavegi.
Annar ökumaðurinn fann til smávægilegra eymsla og var hann fluttur á bráðamóttökuna í Fossvogi til frekari aðhlynningar, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun. Alls voru 49 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu.
Höfðu afskipti af ökumönnum
Lögreglan sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ hafði afskipti af ökumönnum vegna ýmissa ástæðna. Sektað var fyrir ljósabúnað sem var í ólagi og akstur gegn rauðu ljósi, auk þess sem afskipti voru höfð af tveimur ökumönnum sem voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna.
Lögreglan á Vínlandsleið hafði afskipti af ökumanni sem var grunaður um að hafa ekið undir áhrifum vímuefna.
Einnig var sinnt eftirliti með unglingadrykkju á Vælinu, söngkeppni Verslunarskólans.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
