Gerðu árás á Krímskagabrúna

Brúin Kerch sem tengir Krímskaga við Rússland.

Brúin Kerch sem tengir Krímskaga við Rússland. AFP

Úkraína hefur gert árás á brúna sem tengir Krímskaga við Rússland og truflað umferð um þessa mikilvægu samgönguleið, að sögn embættismanns í morgun sem var skipaður af stjórnvöldum í Moskvu.

Í nótt gerðu Úkraínumenn einnig umfangsmikla drónaárás á Rússland. 

„Óvinurinn hefur hæft Krímbrúna,“ skrifaði Sergej Aksjonov á Telegram. „Af þeim sökum verður umferð takmörkuð, líklega fram eftir degi.“

Hann greindi ekki frá því hvort einhver hefði verið drepinn eða særst í árásinni. 

„Viðbragðsaðilar hafa verið kallaðir út til að ná stjórn á aðstæðum.“

Brúin var byggð eftir að Rússland innlimaði skagann við Svartahaf árið 2014 og um hana fara bæði lestir og bílar.

Úkraínumenn hafa þó nokkrum sinnum gert árás á brúna eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022.  

Brúin Kerch sem tengir Krímskaga við Rússland.

Brúin Kerch sem tengir Krímskaga við Rússland. AFP

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅