Hversu oft skiptir þú um rúmföt? Þetta safnast fyrir í rúminu þínu á hverri nóttu
Flestir vita að mikilvægt er að skipta reglulega um rúmföt, en hversu oft er raunverulega nauðsynlegt að gera það? Franskir heilbrigðissérfræðingar mæla með vikulegum skiptum og segja að helst eigi ekki að láta meira en tvær vikur líða á milli.
Franski fréttamiðillinn 20 Minutes fjallar um málið og bendir á að ýmislegt safnist fyrir í rúminu á meðan við sofum, meðal annars sviti, dauðar húðfrumur og rykmaurar.
Stéphane Gayet, læknir og sérfræðingur í hreinlæti og smitsjúkdómum við háskólasjúkrahúsið í Strassborg, segir að almennt sé ráðlegt að þvo rúmföt einu sinni í viku og í síðasta lagi á tveggja vikna fresti.
Þó skipti venjur fólks máli. Til dæmis geti haft áhrif hvort fólk sofi eitt eða með öðrum og hvort það fari í sturtu á kvöldin eða morgnana.
Rykmaurar geta valdið óþægindum
Samkvæmt franska heilsuvefnum E-Santé losar mannslíkaminn frá sér töluverðan raka yfir nóttina auk þess sem dauðar húðfrumur safnast fyrir í rúmfötunum. Þær eru meðal annars fæða rykmaura sem þrífast í rúmum.
Rykmaurarnir sjálfir eru ekki hættulegir en úrgangur þeirra getur valdið ofnæmisviðbrögðum, svo sem hnerra, nefstíflu og versnun astma eða exems.
Sérfræðingar mæla með því að skipta enn oftar um rúmföt ef fólk svitnar mikið á nóttunni, gæludýr sofa uppi í rúmi eða einhver á heimilinu er veikur. Sama á við ef rúmfötin eru orðin óhrein eða farin að lykta illa.
Hitastigið skiptir máli
Þá skiptir einnig máli hvernig rúmfötin eru þvegin. Þvottur við 60 gráður drepur rykmaura og getur því verið sérstaklega gagnlegur fyrir fólk með ofnæmi.
Þvottur við 30 eða 40 gráður skilar þó einnig árangri, enda fjarlægja vatnið, þvottaefnið og hreyfing þvottavélarinnar óhreinindi og hluta ofnæmisvaldanna.
Að lokum er lögð áhersla á að rúmfötin séu alveg þurr áður en þau eru sett aftur á rúmið eða gengið frá þeim. Rök rúmföt geti skapað óæskilegar aðstæður og því sé mikilvægt að vanda til verka þegar þau eru þurrkuð.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗