Eftir magnaðan feril tók hann óvænt skref - Er nú bóndi

Oscar Cardozo, fyrrum framherji Benfica og landsliðs Paragvæ, hefur tekið óvænta stefnu eftir að hafa lagt skóna á hilluna. Hann er nú orðinn nautgripabóndi í heimalandinu.

Cardozo, sem er 43 ára, lauk 23 ára atvinnumannaferli sínum í apríl síðastliðnum eftir að hafa leikið síðustu átta tímabilin með Libertad í Paragvæ.

Samkvæmt fjölmiðlinum El Nacional hefur Cardozo nú komið sér fyrir á afskekktum búgarði í Chaco-héraði þar sem hann sinnir nautgripum, múlösnum og nautum. Hann er sagður njóta rólegra lífs fjarri sviðsljósi knattspyrnunnar.

Cardozo er hvað þekktastur fyrir tíma sinn hjá Benfica þar sem hann lék í sjö ár og vann meðal annars tvo portúgalska meistaratitla. Hann lék einnig með Trabzonspor og Olympiacos.

Framherjinn skoraði 12 mörk í 57 landsleikjum fyrir Paragvæ og tók þátt í heimsmeistaramótinu árið 2010 þar sem liðið komst í átta liða úrslit.

Þar brenndi Cardozo af vítaspyrnu gegn Spáni sem vann leikinn 1-0 og varð síðar heimsmeistari. Nú eru verkefni hans af allt öðrum toga.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅