Ljósafoss í Esjunni þótti njóta sín vel
Birta var í hlíðum Esju á laugardag þegar fjöldi fólks gekk upp í hlíðar fjallsins í svonefndri Ljósafossgöngu.
Til hennar er efnt af Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þau sem hafa fengið krabbamein. Gangan er farin til þess að vekja athygli á starfi miðstöðvarinnar en einnig til að minnast þeirra sem látist hafa af völdum krabbameins og berjast við sjúkdóminn.
„Að sjá fólk mæta hér ár eftir ár er ómetanlegt. Það var heiðskírt og fallegt veður og Ljósafossinn naut sín vel,“ segir Erna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Ljóssins.
Ljósafossinn hefur verið haldinn frá árinu 2009. Hugmyndina á Þorsteinn Jakobsson, sem leiðir gönguna á hverju ári. Sjóvá hefur verið öflugur samstarfsaðili Ljósafossins og styrkir Ljósið um 2.000 kr. fyrir hvern þann sem mætir í gönguna. Féð rennur til nýs heimilis Ljóssins við Gylfaflöt í Grafarvogi í Reykjavík.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗