Skutu niður hundruð dróna á leið til Moskvu

Reykur stígur upp í St. Pétursborg í Rússlandi í síðasta mánuði eftir árás Úkraínumanna á olíustöð. AFP

Rússar sögðust í morgun hafa skotið niður meira en 1.300 úkraínska dróna í nótt, þar á meðal hundruð sem stefndu á Moskvu.

Um er að ræða eina umfangsmestu árás Úkraínumanna í stríðinu sem staðið hefur í tæp fimm ár.

Árásarhrinan átti sér stað nokkrum dögum fyrir leiðtogafund í Shenzhen milli Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta, Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og Xi Jinpings, forseta Kína. Bandarískir embættismenn segja að ekki sé gert ráð fyrir að stríð Rússa gegn Úkraínu verði í brennidepli viðræðnanna.

Loftvarnir skutu niður um 600 dróna sem flugu í átt að Moskvusvæðinu í nótt og fram á mánudagsmorgun, að sögn Sergeis Sobjanín, borgarstjóra Moskvu, á Telegram.

„Flestum var grandað af loftvarnakerfi varnarmálaráðuneytisins langt frá borginni,“ sagði hann og bætti við að 191 dróni hefði verið „gerður óvirkur á leið sinni til Moskvu“.

Engar upplýsingar lágu strax fyrir um tjón eða mannfall.

Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði síðar að loftvarnir hefðu skotið niður og grandað 1.336 úkraínskum drónum með föstum vængjum í nótt yfir fjölda héraða, þar á meðal Moskvusvæðinu, auk Svartahafs og Asovshafs.

Drónarnir voru skotnir niður nokkrum klukkustundum eftir að úkraínskar hersveitir gerðu árás á stóra rússneska jarðefnaeldsneytisverksmiðju, olíuhreinsunarstöð og hergagnaframleiðslustað, sem hluta af árásarherferð Úkraínumanna langt inni í Rússlandi.

Kjarnorkuafvopnun og stríðið í Íran

Kínverjar staðfestu í morgun að Xi myndi eiga viðræður við Trump og Pútín í Shenzhen 19. nóvember, samhliða leiðtogafundi Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC).

Kreml og Hvíta húsið höfðu áður staðfest fundinn.

Samsett mynd af Pútín, Trump og Xi.

Samsett mynd af Pútín, Trump og Xi. AFP

Stjórnvöld í Peking veittu engar upplýsingar um dagskrána en Trump hefur sagst ætla að ræða kjarnorkuafvopnun og stríðið í Íran.

Ekki er gert ráð fyrir að hann ræði stríð Rússa gegn Úkraínu í þríhliða viðræðunum, að sögn bandarískra embættismanna.

Bandarísk stjórnvöld standa fyrir aðskildum samningaviðræðum með þátttöku Kænugarðs og Moskvu sem miða að því að binda enda á átökin, og hittu bandarískir samningamenn bæði Pútín og Volodimír Selenskí Úkraínuforseta í síðustu viku.

Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, sagði að Xi hefði nýlega sýnt „pirring“ vegna hugmynda um að Úkraína yrði rædd á þríhliða vettvangi.

„Hann benti sérstaklega á að þetta væru evrópsk átök þar sem Evrópuþjóðirnar yrðu einnig að eiga sæti við borðið,“ sagði Steinmeier í samtali við sjónvarpsstöðina ARD.

Selenskí hefur varað við því að fundurinn í Shenzhen gæti orðið 21. aldar útgáfa af Jalta-ráðstefnunni árið 1945, þar sem stórveldin gætu reynt að endurskilgreina áhrifasvæði án þess að smærri ríki ættu sæti við borðið.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅