Okkur blæðir og við grátum
„Ég vona að sýningin miðli þeim skilaboðum að við erum alls konar,“ segir Aldís Snorradóttir um sýninguna Lekir líkamar, sameiginlegir heimar sem stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Morgunblaðið/Karítas
Lekir líkamar, sameiginlegir heimar heitir sýning á verkum 30 listamanna frá Póllandi sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, og leggur undir sig báðar hæðir safnsins. Um er að ræða verk úr safneign Bunkier Sztuki í Kraká, sem þykir eitt öflugasta safn pólskrar samtímalistar í Evrópu.
Þetta er í fyrsta sinn sem svo umfangsmikil sýning er unnin úr safneign þess á erlendum vettvangi. Á sýningunni má sjá ljósmyndaverk, málverk, skúlptúra og innsetningar en sýningarstjórar eru Aldís Snorradóttir og Agnieszka Sachar.
„Líkamar leka. Þeim blæðir, þeir svitna, gráta og næra. Þeir draga í sig og skila af sér. Þeir geyma það sem við köllum sjálfið og minna okkur um leið á skilin milli okkar og annarra; skil sem móta sjálfsmynd okkar, tilfinningu fyrir því að tilheyra og hugmyndir um hvað telst viðeigandi eða óviðeigandi. Þessi ósýnilegu mörk eru hvorki sjálfgefin né óumbreytanleg,“ segir í sýningartexta.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗