Var flugfreyja hjá lúxusflugfélagi – Svona er starfið í raun
Amal Cherni var flugfreyja hjá Emirates í fjögur ár þar til hún hætti í lok árs 2025. Emirates er eitt þekktasta lúxusflugfélag í heimi og segir Amal starfið vissulega glæsilegt eins og það lítur út fyrir á yfirborðinu, en það sé einnig mjög líkamlega og andlega krefjandi.
Hún fer yfir helstu kosti og galla starfsins fyrir Business Insider.
„Þessi glæsilegi lífsstíll sem allir sjá á Instagram: Versla í Mílanó, drekka matcha í Japan og safaríferð í Afríku, þetta er alvöru [...] en það er önnur hlið við starfið sem fólk sér ekki,“ segir hún.
„Í þessi ár sem ég starfaði sem flugfreyja var ég oft þreytt eða veik, ég þurfti að fylgja ströngum fegurðarstöðlum og þóknast kröfuhörðum viðskiptavinum [...] Að vera flugfreyja fyrir Emirates var miklu erfiðara en ég hélt, bæði líkamlega og andlega.“
Flugfreyjur hjá Emirates. Mynd/Getty Images
Amal segir að flugfreyjur séu glæsilegar í Emirates-búningnum en það hafi tekið hana að jafnaði þrjár klukkustundir að gera sig tilbúna fyrir vinnu. Fyrir hvert flug hafi útlit hennar verið skoðað gaumgæfilega. „Ef það var krumpa á kjólnum eða hárið úfið þurfti ég að strauja fötin eða gera hárgreiðsluna aftur. Neglurnar þurftu líka að vera lakkaðar í réttum lit.“
Þreyta
„Ég ferðaðist um allan heim og gisti á lúxushótelum, en hafði oft enga orku til að njóta þess,“ segir Amal.
Stundum yfirgaf hún ekki hótelherbergið vegna þreytu, en það var erfitt að ferðast á milli tímabelta.
Frítt húsnæði
„Ég bjó í fríu húsnæði í Dúbaí en fyrirtækið stjórnaði hvar og með hverjum,“ segir Amal og bætir við að það hafi verið heilt hverfi bara með starfsmönnum flugfélagsins.
Góð laun en óvissa um frí
Amal segir að launin hafi verið góð en ófyrirsjáanleiki varðandi frí hafi sett strik í reikninginn.
„Ég hafði lítið að segja um hvenær ég fékk frí. Maður gat sótt um á ákveðnum tímum hvenær maður vildi frí, svo samþykkti flugfélagið það, eða valdi aðrar dagsetningar [...] Ég missti oft af ferðalögum með fjölskyldunni.“
Amal segist hafa lifað glæstum lífsstíl í Dúbaí en haft litla orku til að njóta þess. Hún hafi líka verið oft uppgefin og veik og það hafi að lokum orðið til þess að hún ákvað að segja upp.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗