46 ára gamall Ronaldinho mætti aftur á völlinn í gær - Átti þátt í marki

Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Ronaldinho sneri óvænt aftur á knattspyrnuvöllinn í gær þegar hann lék með Ravenna gegn Forlì í ítölsku C-deildinni.

Ronaldinho, sem er 46 ára, var í byrjunarliði Ravenna og sýndi að hann hefur engu gleymt þrátt fyrir að hafa verið frá atvinnumennsku um árabil.

Hann átti þátt í undirbúningi fyrsta marks liðsins þegar Giuli Donati kom Ravenna yfir með glæsilegu skoti eftir um hálftíma leik.

Fyrrum leikmaður Barcelona og AC Milan tók einnig hornspyrnu sem endaði með skalla í þverslá. Ronaldinho fór af velli í hálfleik en hafði þá vakið mikla athygli.

Stuðningsmenn voru ánægðir með frammistöðu Brasilíumannsins og hrósuðu honum á samfélagsmiðlum. Margir töluðu um að hæfileikarnir væru enn til staðar.

Ronaldinho útilokaði ekki að spila fleiri leiki fyrir Ravenna.

„Þetta leið allt of hratt. Þannig hefur fótboltinn alltaf verið fyrir mér. Ef forsetinn heldur áfram að hringja í mig, þá kem ég aftur! Það er alltaf ánægjulegt,“ sagði Ronaldinho við Sky Sports Italia.

Ravenna lead! 🤩 Ronaldinho was involved in the build-up and what a strike it was from Giulio Donati! https://t.co/BNSWjnEp31

— Sky Sports Football (@SkyFootball) November 15, 2026

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅