„Hún var manneskjan sem maður leit upp til“
Matreiðslumeistarinn Hillary Sterling ræddi um Anne Burrell og áhrif hennar á matreiðsluheiminn í hlaðvarpsþættinum The Slice of Life Show by Pete Ferriero.
Burrell, þekktur sjónvarpskokkur og þáttastjórnandi á Food Network, fannst látin á heimili sínu í Brooklyn í New York þriðjudaginn 17. júní 2025, aðeins 55 ára gömul. Andlát hennar var úrskurðað sjálfsvíg.
Sterling, sem er yfirkokkur á Ci Siamo, einum vinsælasta veitingastaðnum í New York, rifjaði upp gamlar og góðar minningar og sagði Burrell hafa verið einstakan kokk. Hún hefði reglulega heimsótt Ci Siamo, enda er staðurinn nálægt Madison Square Garden og Burrell var mikill aðdáandi íshokkíliðsins New York Rangers.
„Hún var manneskjan sem maður leit upp til,“ sagði Sterling. „Hún var nokkrum árum eldri en ég og nokkrum árum á undan mér á þessari braut.“
„Ég man þegar ég fór á fyrsta veitingastaðinn hennar á horni Seventh Avenue eftir að hún var farin að starfa sjálfstætt,“ hélt Sterling áfram. „Maturinn var ljúffengur og ég man hvað það var fallegt á efri hæðinni.“
Sterling sagði að dánardagur Burrell hefði verið „sannarlega sorglegur dagur, og svo sorglegt fyrir fjölskyldu hennar“.
Talsmenn Burrell, sem var meðal annars þekkt fyrir að stjórna þáttunum Worst Cooks in America, tilkynntu andlát hennar í fréttatilkynningu sem birtist á vef People 17. júní 2025.
„Anne var ástkær eiginkona, systir, dóttir, stjúpmóðir og vinkona. Brosið hennar lýsti upp hvert herbergi sem hún gekk inn í,“ sagði fjölskylda hennar í yfirlýsingu.
Þar sagði einnig: „Ljós Anne geislaði langt út fyrir þá sem hún þekkti og snerti milljónir manna um allan heim. Þótt hún sé ekki lengur meðal okkar lifa hlýja hennar, andi og takmarkalaus ást að eilífu.“
Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir.
Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗