Deilir leyndarmáli að baki 51 árs hjónabandi
Cheryl og Ron Howard á rauða dreglinum árið 2017. Þau fögnuðu 51 árs brúðkaupsafmæli fyrr á þessu ári. AFP/Pascal Le Segretain
Kvikmyndaleikstjórinn Ron Howard segir bros og augnaráð eiginkonu sinnar, rithöfundarins Cheryl Howard, enn fá sig til að verða ástfanginn á ný.
Þau fögnuðu 51 árs brúðkaupsafmæli fyrr á þessu ári.
„Brosið hennar og augun og þetta augnaráð sem fær mig til að verða ástfanginn aftur og aftur,“ sagði Howard í samtali við People á viðburði í New York á dögunum.
„Ég hef verið einstaklega lánsamur að fá að vera maðurinn hennar,“ bætti leikstjórinn við. Þau hjónin eru bæði 72 ára.
Fara í bíó í hverri viku
Fyrr í mánuðinum voru liðin 56 ár frá fyrsta stefnumóti þeirra. Þá fóru þau í bíó að sjá gamanmyndina It’s a Mad, Mad, Mad, Mad World og fengu sér pítsu á eftir.
Bíóferðir skipa enn stóran sess í sambandi þeirra, þótt þeim hafi fækkað í heimsfaraldrinum.
„Nú höfum við enduruppgötvað það að fara í bíó að minnsta kosti einu sinni í viku og eiga stefnumót,“ sagði Howard.
Þau kynntust í enskutíma í framhaldsskóla í Kaliforníu og gengu í hjónaband í júní 1975. Saman eiga þau fjögur börn, dæturnar Bryce, Paige og Jocelyn og soninn Reed.
Fjölskyldan fagnaði með Ron Howard þegar hann fékk stjörnu á frægðargötunni í Hollywood árið 2015. Hann og eiginkonan Cheryl eiga saman fjögur börn. AFP/Alberto E. Rodriguez
Góð samskipti og svolítil heppni
Howard hefur áður sagt góð samskipti vera lykilinn að farsælu hjónabandi en heppni komi líka við sögu.
„Maður verður að læra að eiga samskipti og ræða erfið mál á uppbyggilegan hátt. Þar fyrir utan spilar heppnin inn í því fólk annaðhvort þroskast saman eða ekki. Ég held að það sé ekki hægt að þvinga það fram,“ sagði hann við fjölmiðla vestanhafs árið 2019.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
