11 fórust í eldsvoða í Taílandi
11 fórust og 16 slösuðust eftir að eldur geisaði í fjögurra hæða verslunar- og íbúðarhúsi á ferðamannaeyjunni Phuket í Taílandi.
Eldurinn kviknaði um klukkan 3.30 í nótt að staðartíma, eða klukkan 20.30 í gærkvöldi að íslenskum tíma, í atvinnuhúsnæði þar sem voru veitingastaður og leiguhúsnæði, sagði lögreglumaður frá Patong-samfélaginu á Phuket í samtali við AFP.
„Það tók slökkviliðsmenn tvær klukkustundir að ná tökum á eldinum og fundu þeir 11 manns látna“, þar á meðal Taílendinga og ríkisborgara Mjanmar, sagði hann.
Eldsupptök eru til rannsóknar, sagði lögreglumaðurinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið þar sem hann hafði ekki heimild til að ræða við fjölmiðla.
Sextán manns fengu meðferð á sjúkrahúsi vegna reykeitrunar og áverka af völdum glerbrota, bætti hann við.
Afstaða Taílands til reglna um heilbrigði og öryggi, einkum á börum og næturklúbbum, hefur lengi vakið áhyggjur.
Í júlí varð troðfullur bar í Bangkok alelda og fylltist af reyk, með þeim afleiðingum að um 40 manns létust, eftir að skammhlaup í rafmagni olli eldinum, að sögn yfirvalda.
Eldur fór um Santika-klúbbinn í höfuðborginni á nýársfagnaði árið 2009 og varð 67 manns að bana auk þess sem yfir 200 slösuðust.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
