Fann skilaboð frá eiginmanninum til bestu vinkonunnar

„Það gerði alveg út af við mig að finna skilaboð frá eiginmanni mínum til bestu vinkonu minnar, þar sem hann sagðist vera að hugsa um hana nakta og óska þess að hann væri með henni.“

Svona hefst bréf konu til sambands- og kynlífsráðgjafa The Sun, Dear Deidre.

Konan er 32 ára og eiginmaður hennar 34 ára. Þau hafa verið gift í átta ár.

„Ég sleit vinskapnum mínum við svokallaða vinkonu mína. Ég veit líka að þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún hefur átt óviðeigandi samskipti við giftan mann,“ segir hún.

„Ég elska ennþá eiginmann minn en traustið er alveg farið. Þetta er líka ekki í fyrsta skipti sem ég góma hann senda annarri konu skilaboð. Hann hefur sent nokkrum yfir árin en kemur alltaf með einhverjar afsakanir og kallar mig vænisjúka. Ég veit ekki hvað ég á að gera, á ég að fara frá honum eða gefa honum annað tækifæri?“

Ráðgjafinn svarar:

„Það er hræðilegt að vera svikin, hvað þá af eiginmanni þínum og bestu vinkonu. Það er alveg rétt hjá þér að sætta þig ekki við svona hegðun, gerðu honum það alveg ljóst að þetta er ekki lengur í boði. Hvað þá að saka þig um að vera vandamálið.

Hann verður að hætta strax ef hjónabandið á að lifa þetta af.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅