Ríkisstjórnin þrýstir á Apple
Íslendingar verða að þrýsta á Apple að bjóða upp á íslensku innan kerfa sinna.
Þetta er inntak tveggja aðsendra greina, frá Loga Einarssyni, ráðherra menningar, nýsköpunar og háskólamála, og Halldóri Benjamín Þorbergssyni stjórnarformanni Almannaróms, í Morgunblaðinu í dag.
Á degi íslenskrar tungu eru þeir sammála um að landsmenn verði að láta í sér heyra og skora á bandaríska tæknirisann að taka á sig rögg. Íslenskan hafi ekki notið brautargengis í stýrikerfum fyrirtækisins.
Í dag hefst átak á vegum Almannaróms og Íslandsstofu sem taka höndum saman með stjórnvöldum í átakinu sem beinist að Apple. Logi kynnir fleiri aðgerðir í dag, eins og 50 milljóna króna framlag til aukins framboðs bóka fyrir börn og ungmenni. Ráðherrann segir að framtíð íslenskrar tungu krefjist þess að hún sé aðgengileg í nýjustu tækni. Halldór Benjamín furðar sig á stefnu Apple sem taki fyrir að hægt sé að bæta íslensku við lausnir fyrirtækisins, ólíkt flestum öðrum tæknirisum.
Linda Heimisdóttir framkvæmdastjóri Miðeindar ræðir jafnframt við Morgunblaðið um framtak máltæknifyrirtækisins sem leggur próf fyrir gervigreindarlíkön til að mæla íslenskufærni þeirra. Hún segir Íslendinga verða að hafa frumkvæði að því að leggja tæknirisunum lið við innleiðingu íslenskunnar.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗