Manndrápsdómur talinn of gamall

Maðurinn hefur ítrekað brotið gegn íslenskum útlendingalögum.

Maðurinn hefur ítrekað brotið gegn íslenskum útlendingalögum. mbl.is/Karítas

Nokkuð matskennt virðist vera hversu langt einstaklingur þarf að ganga til þess að íslenskum stjórnvöldum sé heimilt að vísa honum úr landi vegna almannahagsmuna.

Nýlegur úrskurður kærunefndar útlendingamála hefur vakið hörð viðbrögð en nefndin felldi úr gildi ákvörðun um brottvísun albansks ríkisborgara sem hefur verið dæmdur fyrir manndráp og er nú til rannsóknar vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni yngra en 15 ára. Maðurinn hefur jafnframt ítrekað brotið gegn íslenskum útlendingalögum, meðal annars með því að dvelja og starfa hér án tilskilinna leyfa og koma til landsins þrátt fyrir virkt endurkomubann. Kærunefndin telur þrátt fyrir það ekki nægilega sýnt fram á að brottvísun hans sé nauðsynleg vegna almannahagsmuna.

Athygli vekur að nefndin horfir meðal annars til fimm ára tímamarka sem gilda um brottvísun vegna erlendra refsidóma, þótt þau gildi ekki um þá sjálfstæðu lagaheimild til brottvísunar vegna almannahagsmuna sem ákvörðun Útlendingastofnunar byggði á. Í lögskýringargögnum er skýr greinarmunur gerður á þessum tveimur heimildum. Það er því sjálfstæð ákvörðun kærunefndarinnar að líta til tímamarkanna við mat sitt, en ekki skilyrði sem löggjafinn setti um beitingu almannahagsmunaákvæðisins.

Sigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins segir niðurstöðu kærunefndarinnar ekki koma sér á óvart í ljósi gildandi útlendingalaga.

„Ég heyri alveg hvað fólk segir, fólk vill bara brottvísa manninum. Maður þarf samt að staldra við og hugsa hvort það sé eðlilegt að brottvísa honum ef hann hefur brotið af sér áður en við réttum yfir honum,“ segir Sigríður í samtali við Morgunblaðið.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅