Arnar knúsaði Ísak sem missti afa sinn

Ísak Bergmann Jóhannesson missti afa sinn.

Ísak Bergmann Jóhannesson missti afa sinn. mbl.is/Ólafur Árdal

„Arnar kom og knúsaði mig fyrir leikinn,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í fótbolta, þegar hann ræddi fráfall afa síns, Guðjóns Þórðarsonar, á blaðamannafundi í gær.

Ísak og Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari vissu af andláti Guðjóns áður en Ísland vann Búlgaríu, 5:0, á föstudaginn.

„Það er auðvitað mjög leiðinlegt að missa afa, sem er náttúrulega goðsögn í íslenskum fótbolta. En maður þarf að vera einbeittur á verkefnið gegn Lúxemborg.“

Guðjóns verður minnst fyrir leik Íslands og Lúxemborgar á Laugardalsvelli í dag.

„Eins og Arnar sagði verður þetta tilfinningaþrunginn leikur en við þurfum að klára þetta vel. Það er leiðinlegt að missa afa og svona stóran mann í íslenskum fótbolta. Svona er lífið, því miður.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅