Frægasta fylgdarkona Ástralíu leggur skóna á hilluna – Skilaboð frá viðskiptavini gerðu útslagið
Fókus
Mánudaginn 16. nóvember 2026 06:00
Kayla er vinsæl á TikTok.
Hin ástralska Kayla Jade var ein frægasta háklassa vændiskona heims, allavega í Ástralíu, áður en hún lagði skóna á hilluna.
Hún nýtur mikilla vinsælda á TikTok og hefur leyft áhugasömum að skyggnast á bak við tjöld vændisþjónustu undanfarin ár.
Sjá einnig: Háklassa vændiskona um dökku hliðar bransans – „Myndi aldrei mæla með starfinu“
Í samtali við ástralska miðilinn News.com.au sagðist Kayla fyrst og fremst hætt að vinna til að eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni og henni fyndist hún hafa náð þeim fjárhagslegu markmiðum sem hún hafði sett sér.
En fleiri þættir spiluðu inn í ákvörðun hennar, meðal annars viðskiptavinirnir. Hún nefnir sérstaklega samskipti við einn þeirra og segir að í kjölfar þess að lesa skilaboð frá honum hafi hún fundið að nú væri kominn tími til að loka þessum kafla.
„Ég var að fara í gegnum skilaboðin mín frá viðskiptavinum einn morguninn og var að tala við einn þeirra. Hann var bara að vera mjög pirrandi og reyna að rugla í mér og þá fann ég bara: „Þetta er komið gott.““
Skjáskot/TikTok
Svaraði alls konar spurningum
Kayla hefur verið dugleg að opna sig um lífið sem kynlífsverkakona á TikTok.
Í júní 2024 svaraði hún spurningu sem brennur á mörgum: Hvað gerir hún ef viðskiptavinur er virkilega óaðlaðandi?
„Í fullri hreinskilni þá skiptir útlit þeirra mig litlu máli. Ég hef verið með mjög óaðlaðandi kúnna í gegnum árin, mjög feita gaura og ljóta gaura. En flestir viðskiptavinir mínir eru venjulega útlítandi,“ sagði hún.
„En það sem skiptir mig mestu máli er hreinlæti […] mér finnst tilhugsunin um að finna einhvers konar líkamslykt viðurstyggileg […] Ég læt alla viðskiptavini byrja á því að fara í sturtu og horfi á þá í sturtunni og passa að þeir þrífi sig almennilega. Ég er með sápur fyrir þá, munnskol og allt sem þeir þurfa.“
Kayla hefur þurft að reka karlmann aftur í sturtu. „Hann fór í sturtu, kom inn í herbergi og við byrjuðum að stunda kynlíf en hann lyktaði svo ógeðslega illa að ég sagði honum að fara aftur í sturtu. Honum fannst það í lagi því hann vildi auðvitað að ég væri einnig að skemmta mér.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗