Afgangur og mikið fjárfest
Gert er ráð fyrir 566 milljóna kr. afgangi af rekstri A- og B-hluta sveitarsjóðs Múlaþings á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sem nú er til umræðu. Veltufé frá rekstri er ætlað að verði 1.711 m.kr., eða 13,3% af tekjum. Skuldaviðmið verður 90,5% og á næstu árum mun það væntanlega lækka talsvert.
Almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækka mest um 2,5%. Nettófjárfestingar verða 1.640 m.kr. á árinu og 6,4 milljarðar 2027-2030. Afborganir lána næstu ár verða hærri en nýjar lántökur.
Tekjur samstæðu Múlaþings eru áætlaðar 12,8 milljarðar króna árið 2027, sem er 3,7% hækkun frá útkomuspá þessa árs. Útsvarstekjur hækka um 6,4% og eru um 37% af tekjum. Framlög Jöfnunarsjóðs nema 3,6 milljörðum og hækka um 2,1%. Laun og launatengd gjöld nema 6,9 milljörðum króna og hækka um 5,9% milli ára, fyrst og fremst vegna kjarasamninga. Af hverjum 100 krónum í skatttekjum Múlaþings fer 51 króna til skólastarfs.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗