Aftur í tísku að vera í hljómsveit

Jóhann segir að undirbúningur tónleikaferðalaga hefjist oft sex til níu mánuðum áður en ný plata komi út. 12-18 mánuðir fari í að fylgja plötunni eftir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óhætt er að segja að íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men, OMAM, sem var stofnuð árið 2010 og sigraði í tónlistarkeppninni Músíktilraunum sama ár, sé sú íslenska sveit sem náð hefur hvað mestri hylli á alþjóðavísu.

Hljómsveitin, sem hefur gefið út fjórar vinsælar breiðskífur, ferðast reglulega um heiminn og spilar á 1.500-50.000 manna tónleikum. Miðasala á einu tónleikaferðalagi hleypur á hundruðum milljóna króna.

Jóhann Rúnar Þorgeirsson, hljóðmaður og framleiðslustjóri Of Monsters and Men, fyrir alþjóðlegt tónleikaferðalag hljómsveitarinnar sem hófst í fyrrahaust, segir í samtali við Morgunblaðið að tuttugu og þriggja manna teymi ferðist með bandinu þegar mest lætur.

Sveigjanleg framleiðsla

Hann segir að stærsta áskorunin í svona yfirgripsmiklu verkefni sé að hafa framleiðsluna sveigjanlega. „Þegar spilað er í allt frá 1.500 manna sölum, álíka stórum og Eldborg í Hörpu, og á upp í 50 þúsund manna tónlistarhátíðum, þurfa græjurnar að henta fyrir misstór svið en passa á sama tíma í einn trukk. Þetta má ekki vera kjánalega stórt á litlu stöðunum eða asnalega lítið á stóru stöðunum. Það þarf öllum að líða vel á sviðinu,“ segir Jóhann og brosir.

Eins og fyrr sagði ber Jóhann titilinn framleiðslustjóri á tónleikaferðinni (e. Production Manager). Einnig eru með í för fararstjóri (e. Tour Manager) og fjöldi annarra starfsmanna.

Sem dæmi um aðra sérhæfða starfsmenn er maður sem hljóðblandar í heyrnartól hljómsveitarmeðlima, Finnur Ragnarsson. „Hann hefur komið víða við og hefur ferðast með Björk, Sigur Rós, Placebo o.fl. Hann þykir einn sá besti í heiminum á sínu sviði. Hann hefur einhverja náðargáfu. Það er slegist um að fá hann með í tónleikaferðir.“

Um viðskiptahliðina segir Jóhann algengt að sérstakir bókarar kaupi nokkra tónleika í pakka. Hljómsveitin fái þá kannski eina greiðslu fyrir ákveðið marga tónleika og viðbótargreiðslur eftir því hvernig gengur að selja miða. „Til dæmis í Evrópu þá keypti einn þýskur bókari ferna tónleika. Hann semur svo við ýmsa tónleikastaði en alltaf í samráði við hljómsveitina.“

Ef miðarnir seljast upp eru tónleikarnir gjarnan færðir á stærri staði eins og Jóhann útskýrir. „Annars er ekkert eitt módel í þessu. Hljómsveitinni er samt alltaf tryggð ákveðin fjárupphæð enda kostar mikið að mæta á staðinn. Bókarinn skipuleggur svo viðtöl, kynningar og fleira í samstarfi við bandið.“

Fylgja plötu eftir

Spurður um þumalputtareglur segir Jóhann að undirbúningur tónleikaferðalaga hefjist oft sex til níu mánuðum áður en ný plata komi út. „Svo er talað um að nota 12–18 mánuði í að fylgja plötunni eftir.“

Jóhann segir að í tilfelli OMAM hafi hljómsveitin byrjað sitt tónleikaferðalag í Bretlandi haustið 2025. „Hún spilaði þar í rúma viku á frekar litlum stöðum, 500-1.000 manna tónleikahúsum þar sem allt var uppselt. Síðan notuðu þau efni, ljósmyndir, myndbönd o.fl., sem varð til í tengslum við þessa tónleika, til að kynna nýju plötuna úti um allan heim. Við vorum þegar búin að ákveða að fara til Bandaríkjanna í fimm vikur og Evrópu í aðrar fimm vikur áður en við fórum til Bretlands. Svo byrjaði þetta að vinda upp á sig. Heildarumfangið þróast dálítið eftir því hvernig tónleikaferðin gengur og hvort platan falli í kramið.“

Framleiðslustjórinn segir að OMAM hafi gengið mjög vel á árinu og ekki sé allt búið enn. „Tónleikarnir sem við héldum í Kaplakrika í Hafnarfirði í byrjun október sl. áttu að vera lokatónleikar ferðalagsins. En í sumar kom áhugi frá Suður-Ameríku. Við förum þangað í tvær vikur í lok nóvember og höldum sex tónleika.“

Í mörg horn er að líta við undirbúning tónleika í hverju landi, hvort sem það er að fylla út tollaskýrslur eða annað. „Við erum með einn mann í vinnu sem er sérhæfður í að halda utan um flutninga milli landa. Hann var til dæmis hluti af síðustu tónleikaferð Harry Styles,“ segir Jóhann.

Góður aðdáendahópur

Jóhann segir það einkenna íslenskt tónlistarfólk sem spilar erlendis að það eigi mjög góðan aðdáendahóp. „Fólk sem fylgist með Björk, Sigur Rós, OMAM og Kaleo sem dæmi eru aðdáendur sem hafa mikinn áhuga á tónlist. Efni þessara tónlistarmanna er ekki dæmigerð tísku- eða vinsældatónlist. Þegar OMAM sló í gegn árið 2010 var músík eins og þau gerðu alls ekki í tísku en svo breyttist það snögglega. Þessi þjóðlagapopptónlistarsena, sem þau eru hluti af, sprakk út.“

Jóhann, sem hefur langa reynslu af vinnu með íslenskum hljómsveitum heima og heiman, segir starfið vera sannkallað draumaverkefni.

Um lífið á ferðalaginu segir Jóhann að hópurinn eyði miklum tíma saman, gjarnan í rútum á leið á milli staða. „Það hefur gengið mjög vel. Aðaláhyggjurnar eru að fá ekki almennilegt kaffi eða nógu góðan mat. Ég tek til dæmis alltaf kaffivélina mína með í ferðalögin. Það er ekkert partístand á okkur,“ segir Jóhann og brosir.

Alinn upp við tónlist

Blaðamaður biður hann nú að líta til baka og rifja upp ferilinn, sem hófst á skemmtistaðnum Broadway haustið 2005.

„Ég er alinn upp við tónlist. Pabbi er alæta og var alltaf að hlusta á nýja tónlist. Það sama má segja um bróður hans sem er plötusnúður. Það var samt enginn í fjölskyldunni að spila á hljóðfæri. Ég kynntist því frekar seint en ég hef alltaf verið forvitinn um tónlist: rapp, djass, þungarokk og allt þar á milli.“

Þegar Jóhann var að alast upp í Garðabænum var mikil gróska í tónlistarlífi bæjarins. „Við áttum flottar fyrirmyndir eins og bræðurna Ómar Guðjónsson gítarleikara og Óskar Guðjónsson saxófónleikara. Það hafði mikið að segja. Þarna var líka blómatími rokkhljómsveitarinnar Mínuss, söngkonan Ragnheiður Gröndal var sömuleiðis að taka sín fyrstu skref og Dikta einnig, allt Garðbæingar.“

Jóhann spilaði sjálfur í nokkrum hljómsveitum en hugur hans hneigðist snemma að hljóðvinnslu. Eftir nám í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ fór Jóhann til Lundúna að læra hljóðupptökur.

Öll krúttsenan

Í London kynntist hann eiginkonu sinni og að námi loknu fluttu þau heim. „Þetta var rétt fyrir fjármálahrunið 2008. Í kjölfarið fór allt á flug og mikil gróska varð í íslenska tónlistarbransanum. Ég fékk vinnu á tónleikastaðnum Faktorý en þar í gegn streymdi öll krúttsenan og hljómsveitir eins og OMAM, Moses Hightower og fleiri.“

Á virkum dögum vann Jóhann við hljóðupptökur. „Svo bara vatt þetta upp á sig og ég byrjaði að ferðast til útlanda með hljómsveitum eins og Mammút, Diktu, Agent Fresco, Sólstöfum, Ásgeiri Trausta og fleirum.“

Spurður um stöðuna í tónleikasenunni í dag miðað við fyrir tíu árum segir Jóhann að á síðustu árum hafi ekki verið mikið um að íslenskar hljómsveitir fari til útlanda í tónleikaferðir. „Þegar ég var að ferðast sem mest á síðasta áratug voru stöðugt einhverjar hljómsveitir á ferðalagi um Evrópu. Þetta er samt aðeins að lifna við núna. Það er aftur að komast í tísku að vera í hljómsveit,“ segir Jóhann.

Auk þess að ferðast með íslenskum hljómsveitum erlendis hefur Jóhann einnig haft nóg að gera á Íslandi. Oftar en ekki vinnur hann náið með æskuvini sínum og ljósamanni, Orra Rósenkranz. „Við erum nokkurs konar tvíeyki í bransanum. Upphaflega tókum við flugið með Diktu þegar þeir slógu í gegn.“

Á þeim tíma var Garðbæingurinn Máni Pétursson umboðsmaður hljómsveitarinnar og þeir Jóhann og Orri lögðu honum lið í tónleikahaldinu. „Við sáum um öll tæknimálin og samskipti við hljómsveitirnar.“

Fylgja IceGuys

Með tímanum stækkuðu viðburðirnir. „Við höfum til dæmis fylgt IceGuys strákahljómsveitinni í sínum verkefnum en einnig unnið með einstökum liðsmönnum hennar eins og Friðriki Dór. Ég held að ég hafi séð um fyrstu útgáfutónleikana hans þegar um 300 manns mættu. Svo springur þetta út hjá honum. Það hefur verið rosalega gaman að fylgjast með ferlinum hans.“

En hvað tekur við hjá þér eftir áramót?

„Ég segi stundum í gríni að þá verði ég atvinnulaus. En auðvitað er það ekki alveg þannig. Það er enn óvíst hvort OMAM geri eitthvað fleira á næsta ári. Það er líka allt í lagi að taka smá pásu, við erum búin að vera á ferðinni í fjórtán mánuði.“

Um leið og Jóhann kemur heim frá Suður-Ameríku í byrjun desember þarf hann að mæta á æfingu fyrir tónleika IceGuys í Laugardalshöll. „Orri er framleiðslustjóri tónleikanna en ég sé um hljóðið. Ég verð einnig með HAM-útgáfutónleikana núna í lok nóvember o.fl.,“ segir Jóhann að endingu.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅