Leika með sorgarbönd á morgun
Guðjóns Þórðarsonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara karla í fótbolta, verður minnst með mínútu þögn fyrir leik Íslands og Lúxemborgar í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli annað kvöld.
Þetta kom fram í upphafi blaðamannafundar íslenska liðsins í dag. Íslensku leikmennirnir munu jafnframt bera sorgarbönd í leiknum.
Guðjón var landsliðsþjálfari Arnars Gunnlaugssonar, núverandi þjálfara Íslands, og afi landsliðsmannsins Ísaks Bergmanns Jóhannessonar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗