Guðfaðir fíkniefnaviðskipta í Mexíkó fallinn frá

Erlent | AFP | 15.11.2026 | 22:50

Þessi mynd er tekinn af Gallardo í fangelsi árið 2005.

Þessi mynd er tekinn af Gallardo í fangelsi árið 2005. AFP

Mexíkóski fíkniefnabaróninn Miguel Angel Felix Gallardo er fallinn frá 80 ára að aldri. 

Yfirvöld þar í landi greina frá því að hann hafi látist á sjúkrahúsi þangað sem hann var fluttur fyrir tveimur dögum síðan. Gallardo hafði orðið fyrir líffærabilun og voru batahorfur hans tvísýnar. 

Gallardo er talinn upphafsmaður nútímafíkniefnasmygls í Mexíkó en hann hefur meðal annars starfað með Joaquin Guzman, betur þekktur sem „El Chapo.“ Gallardo var upphafsmaður Guadalajara-eiturlyfjahringsins. 

Gallardo hafði setið í fangelsi síðan árið 1989 og afplánaði 40 ára dóm fyrir fyrir fíkniefnaviðskipti og manndráp á bandarískum alríkislögreglumanni. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅