Óttast ekki að Orri og Andri verði eins og Salah og Mané
Orri og Andri Lucas fagna marki með landsliðinu ásamt Ísak Bergmann Jóhannessyni. Ljósmynd/Alex Nicodim
„Þeir eru alls ekki þannig týpur,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson þegar hann var spurður hvort samkeppni framherjanna Orra Steins Óskarssonar og Andra Lucas Guðjohnsen um mörkin gæti komið niður á íslenska karlalandsliðinu í fótbolta.
Ísak ræddi samstarf þeirra á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Lúxemborg annað kvöld er hann var spurður út í hvort þeir gætu orðið eins og Mo Salah og Sadio Mané hjá Liverpool á sínum tíma þar sem þeir virtust litlir vinir og gáfu sjaldan hvor á annan.
„Andri lagði upp fyrir Orra á móti Lúxemborg og hið gagnstæða hefur líka gerst. Orri hugsar númer eitt, tvö og þrjú um liðið og Andri er nákvæmlega eins.“
Hann segir Andra einnig mikilvægan innan hópsins.
„Hann er gríðarlega félagslyndur, talar við alla og vill bara að liðinu gangi sem best.“
Þótt báðir vilji skora segir Ísak hagsmuni liðsins ganga fyrir.
„Auðvitað eru þeir kannski svolítið að spá í að ná þessu markameti. En þeir eru fyrst og fremst liðsmenn og eru eiginlega glaðari þegar hinn skorar, held ég.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗