Laus störf verða ekki sjálfkrafa mönnuð í Hafnarfirði
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt reglur um tímabundið ráðningarbann til tveggja ára. Markmiðið er að fækka stöðugildum hjá sveitarfélaginu og draga úr launakostnaði með því að endurmeta þörfina fyrir ráðningar þegar störf losna.
Reglurnar voru samþykktar á fundi bæjarráðs 12. nóvember en samkvæmt þeim á sérstök ráðningarnefnd að starfa frá 1. nóvember 2026 til 31. október 2028.
Meginreglan er sú að laus störf verði ekki sjálfkrafa mönnuð að nýju. Allar ráðningar í störf utan skilgreindrar grunnþjónustu þurfa samþykki ráðningarnefndar, jafnvel þótt ráðið sé í stað starfsmanns sem hættir og ráðningin rúmist innan samþykktrar fjárhagsáætlunar.
Undanþágur fyrir grunnþjónustu
Í reglunum er gert ráð fyrir undanþágum frá ráðningarbanninu vegna tiltekinna starfa í leikskólum, grunnskólum og á heimilum fyrir fatlað fólk.
Þannig verður heimilt að ráða starfsfólk í stað þeirra sem hætta vegna eðlilegrar starfsmannaveltu án samþykkis ráðningarnefndar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Skilyrðin eru að ráðið sé í stöðugildi sem þegar er til staðar, starfshlutfall sé ekki aukið og viðkomandi starfseining sé innan samþykktrar launaáætlunar.
Undanþágurnar ná hins vegar ekki til sérfræði- og stjórnendastarfa á þessum starfsstöðum. Þá þarf ávallt samþykki ráðningarnefndar fyrir ráðningu ef viðkomandi starfseining hefur farið fram úr samþykktri launaáætlun.
Þegar óskað er eftir heimild til ráðningar þarf meðal annars að gera grein fyrir því hvers vegna nauðsynlegt sé að manna starfið, hvaða áhrif það hefði á þjónustu og starfsemi ef ekki yrði ráðið og hvort hægt sé að fella niður verkefni eða dreifa þeim á annað starfsfólk.
Einnig þarf að meta hvort unnt sé að lækka starfshlutfallið.
Vara við fækkun án forgangsröðunar
Fulltrúi Miðflokksins í bæjarráði styður takmarkanir á ráðningum en varar við því að ráðningarbann sem byggist á starfsmannaveltu geti leitt til fækkunar starfa án þess að heildstæð forgangsröðun verkefna hafi farið fram.
Í bókun fulltrúans kemur fram að enn sé starfsfólk á launum hjá Hafnarfjarðarbæ sem sinni verkefnum sem sveitarfélaginu sé ekki skylt að sinna samkvæmt lögum og byggist á pólitískum áherslum kjörinna fulltrúa.
Í ljósi alvarlegrar fjárhagsstöðu bæjarins telur fulltrúinn eðlilegt að slík verkefni og stöðugildi sem þeim tengjast verði sérstaklega tekin til endurskoðunar, fremur en að dregið verði úr lögbundinni grunnþjónustu.
Miðflokkurinn óskar jafnframt eftir sundurliðuðu yfirliti yfir stöðugildi Hafnarfjarðarbæjar eftir starfsheitum og sviðum.
Meirihlutinn vill standa vörð um grunnþjónustu
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar leggur í bókun sinni áherslu á að ráðningarbannið nái ekki til starfa sem tengjast lögbundnum skyldum sveitarfélagsins.
Ráðningarbanninu sé ekki ætlað að hafa neikvæð áhrif á lögbundna grunnþjónustu við íbúa og þeim verkefnum verði áfram sinnt af ábyrgð og metnaði.
Meirihlutinn boðar jafnframt frekari greiningar á störfum og verkefnum sveitarfélagsins með það að markmiði að samræma verkefni, einfalda verkferla og kanna möguleika á aukinni hagkvæmni.
Áhersla er lögð á að slíkar breytingar byggist á faglegri greiningu og heildstæðu mati á starfseminni, þannig að ekki verði gengið á lögbundna grunnþjónustu.
Áður ákveðið að fækka um 18,6 stöðugildi
Ráðningarbannið er liður í umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti 29. október vegna erfiðrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Eins og mbl.is hefur áður greint frá var þá ákveðið að leggja niður 23 störf hjá bænum, sem samsvara 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum sem gegna störfum sem lögð verða niður verður boðið annað starf hjá sveitarfélaginu og nemur fyrirhuguð fækkun því 18,6 stöðugildum.
Áætlað er að þær aðgerðir skili 330 milljóna króna varanlegum árlegum sparnaði frá og með árinu 2028.
Í hinum nýsamþykktu reglum um ráðningarbann kemur ekki fram hversu mörgum stöðugildum stefnt sé að því að fækka til viðbótar eða hversu miklum sparnaði bannið eigi að skila.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗