Belgar fóru illa með Ítali
Belgía er komin áfram í átta liða úrslit Þjóðadeildar Evrópu eftir sigur á Ítalíu, 4:1, í A-deildinni í Belgíu í kvöld.
Belgar enda í öðru sæti fyrsta riðilsins með tólf stig en Frakkar vinna riðilinn með 13 stig. Ítalir hafna í þriðja sæti með tíu og Tyrkir neðst með ekkert.
Pio Esposito kom Ítalíu yfir á elleftu mínútu en Maxim De Cuyper jafnaði metin fjórum mínútum síðar.
Nathan Ngoy og Jérémy Doku komu síðan Belgum í 3:1 með mörkum á 22. og 26. mínútu.
Diego Moreira skoraði svo fjórða mark Belgíu á 80. mínútu.
Frakkar unnu Tyrki, 2:1, í Bordeaux.
Fyrra mark Frakka var sjálfsmark en Eli Junior Kroupi skoraði seinna markið á 80. mínútu. Abdülkerim Bardakci minnkaði muninn fyrir Tyrki undir lok leiks.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗