Harry Bretaprins við Úkraínumenn: „Þið munið vinna stríðið“
Bretaprins heimsótti meðal annars heilsugæslustöð sem sérhæfir sig í endurhæfingu særðra hermanna í borginni Lviv í vesturhluta landsins. AFP/Efrem Lukatsky
Harry Bretaprins fór í óvænta tveggja daga heimsókn til Úkraínu um helgina og stappaði stálinu í særða hermenn í endurhæfingu.
Prinsinn hafði áður ferðast þrisvar sinnum til Úkraínu frá því að Rússar gerðu innrás sína árið 2022. Að þessu sinni hitti hann fyrir særða hermenn og heilbrigðisstarfsfólk sem starfar á vígstöðvum.
„Þið munið vinna stríðið, og þá verður árangur í augsýn,“ sagði breski prinsinn þegar hann heimsótti heilsugæslustöð sem sérhæfir sig í endurhæfingu særðra hermanna í borginni Lviv í vesturhluta landsins.
Hann sagði heiminn jafnframt myndu halda áfram að styðja við Úkraínu, og kvaðst vongóður um að hið langdregna stríð myndi brátt taka enda.
Prinsinn hitti einnig íþróttamenn sem kepptust um að verða fulltrúar Úkraínu á Invictius-leikunum, sem Harry stofnaði til, sem haldnir verða í Birmingham á næsta ári.
Keppnirnar fóru fram í skólaíþróttahúsi, og þar fylgdist prinsinn meðal annars með ruðningsleikmönnum í hjólastól sem börðust um að verða framlag Úkraínu til Invictius-leikanna, en þeir eru alþjóðleg íþróttakeppni fyrir fyrrum og núverandi hermenn og hyggst Úkraína senda stærsta lið sitt – alls 60 manns – til leikanna á næsta ári.
Þá spreytti hann sig í tenniskenndu íþróttinni pickleball, og lét vel af atrennunni.
Prinsinn hitti einnig íþróttamenn sem kepptust um að verða fulltrúar Úkraínu á Invictius-leikunum, sem Harry stofnaði til, sem haldnir verða í Birmingham á næsta ári. AFP/Efrem Lukatsky
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

