Dramatískt sögusvið og litríkt fólk

Húsið á gamla prestssetrinu er svipsterk bygging þar sem hamrabelti og há fjöllin eru fallegur bakgrunnur. mbl.is/Sigurður Bogi

Aldir eru undir í Holts sögu eftir Óskar Guðmundsson sem út kom á dögunum. Þar er fjallað um Holt undir Eyjafjöllum, mektarbýli og prestssetur í óratíma. Frumkvæði að því að sagan var skráð átti sr. Halldór Gunnarsson sem lengi var prestur í Holti og leitaði hann til Óskars um verkefnið.

„Ég óttaðist að þetta kynni að verða erfitt meðferðar, saga af karlprestum í þúsund ár. En þegar ég var kominn af stað í grúskið hvarf sá ótti. Mýktin var meiri, mannlífið svo fjölbreytt og sögusviðið svo dramatískt. Landið mikilúðlegt og náttúran miskunnarlaus. En þarna gerir litríkt fólk, karlar og konur, sig gildandi í sögunni. Það er töfrandi hve fólk af þessum slóðum hefur auðgað frásagnir öld eftir öld með sögnum af duldum kröftum og huldum heimum,“ segir Óskar um Holt; staðinn sem hann telur dulmagn fylgja.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅