Óvíst hvort Aron jafni leikjametið á morgun

Aron Einar Gunnarsson

Aron Einar Gunnarsson Ljósmynd/Alex Nicodim

„Þetta er stór stund fyrir íslenskan fótbolta og hann persónulega,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari um Aron Einar Gunnarsson á blaðamannafundi í dag.

Aron Einar kveður landsliðið í eftir leik Íslands og Lúxemborgar í Þjóðadeildinni annað kvöld en hann þarf einn landsleik í viðbót til að jafna leikjamet Birkis Bjarnasonar. Arnar segir þó úrslitin verða að ráða för þegar kemur að skiptingum.

„Draumastaðan væri að við tryggðum okkur sigur á morgun, sigur í riðlinum, og hann fengi þann heiður sem hann á skilið. En við getum ekki látið tilfinningarnar ráða. Ef staðan verður þannig að við sjáum ekki færi á að hann spili eina einustu mínútu verður það bara þannig. Það yrði leiðinlegt.“

Arnar hrósaði Aroni fyrir framlag hans utan vallar síðustu átján mánuði.

„Það sem hann hefur gert fyrir mig utan vallar, sem þið sjáið kannski ekki, og hvað hann hefur hjálpað guttunum og Orra fyrirliða er ómetanlegt. Það sýnir hvers konar maður hann er.“

Hann segir Aron hafa sýnt fagmennsku þótt spilatíminn hafi ekki alltaf verið eins og hann óskaði.

„Vafalítið er hann svekktur og þolir mig örugglega ekki stundum fyrir hvað hann hefur spilað minna en hann hélt sjálfur. En hann hefur aldrei látið mig finna fyrir því. Við munum gera okkar allra besta til að kveðjustundin verði sem merkilegust.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅