Belgar fór illa með Ítali

Belgar léku á als oddi.

Belgar léku á als oddi. AFP/John Thys

Belgía er komin áfram í átta liða úrslit Þjóðadeildar Evrópu eftir sigur á Ítalíu, 4:1, í A-deildinni í Belgíu í kvöld. 

Belgar enda í öðru sæti fyrsta riðilsins með tólf stig en Frakkar vinna riðilinn með 13 stig. Ítalir hafna í þriðja sæti með tíu og Tyrkir neðst með ekkert. 

Pio Esposito kom Ítalíu yfir á elleftu mínútu en Maxim De Cuyper jafnaði metin fjórum mínútum síðar. 

Nathan Ngoy og Jérémy Doku komu síðan Belgum í 3:1 með mörkum á 22. og 26. mínútu. 

Diego Moreira skoraði svo fjórða mark Belgíu á 80. mínútu. 

Frakkar unnu Tyrki, 2:1, í Bordeaux. 

Fyrra mark Frakka var sjálfsmark en Eli Junior Kroupi skoraði seinna markið á 80. mínútu. Abdülkerim Bardakci minnkaði muninn fyrir Tyrki undir lok leiks. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅