Miðflokkurinn velur stjórnartillögu Sósíaldemókrata

Ringqvist gerði í lok október tilraun til þess að mynda ríkisstjórn þvert yfir miðju með hægri- og vinstriflokkum, en það tókst ekki. AFP/Jonathan Nackstrand

Elisabeth Thand Ringqvist, formaður sænska Miðflokksins, hefur ákveðið að velja tillögu Sósíaldemókrataflokksins um nýja ríkisstjórn Svíþjóðar, og þar með færst einu skrefi nær því að mynda nýja ríkisstjórn.

Rúmir tveir mánuðir eru liðnir frá því að Svíar gengu að kjörborðinu, en enn hafa stjórnarmyndunarþreifingar ekki leitt til myndunar ríkisstjórnar. Fyrir fimm dögum fékk Ulf Kristerson, formaður Moderaterna og starfandi forsætisráðherra, stjórnarmyndunarumboð í annað sinn og hafði eina viku til þreifinganna, en sú tilraun hefur ekki boðið árangur.

Ringqvist gerði í lok október tilraun til þess að mynda ríkisstjórn þvert yfir miðju með hægri- og vinstriflokkum, en það tókst ekki. 

Veltur á Miðflokknum

Stjórnarmyndunin veltur á Miðflokknum, sem er undir forystu Elisabeth Thand Ringqvist. Hún fékk umboð til að mynda ríkisstjórn og reyndi að ná miðjuflokkunum saman en það gekk ekki sem skyldi. Nú fyrir helgi fékk Ringqvist tvær tillögur að myndun ríkisstjórnar, annars vegar frá Moderaterna og hins vegar frá Sósíaldemókrötum.

„Eftir að hafa farið yfir tillögu Andersson eru skilaboð okkar þau að tilboð Sósíaldemókrata sé það sem við kjósum að semja áfram um,“ er haft eftir Thand Ringqvist í umfjöllun STV.

Thand Ringqvist kveðst enn telja að Magdalena Anderson verði forsætisráðherraefni ríkisstjórnarinnar, eins og Miðflokkurinn gaf út fyrir kosningar, en fyrir mánuði síðan felldi sænska þingið tillögu um að Anderson yrði forsætisráðherra.

Erfitt fyrir vinstriblokkina að koma sér saman 

Þrátt fyrir þá viljayfirlýsingu sem felst í samþykki tilboðsins er björninn ekki unninn, enda hefur það gengið erfiðlega hjá vinstri flokkunum að ná saman um mikilvæg málefni þrátt fyrir að hægri flokkarnir hafi tapað þingmeirihluta sínum í nýafstöðnum kosningum. 

Vinstriflokkurinn hefur til að mynda farið fram á að fá embætti ráðherra eigi hann að verða hluti af ríkisstjórn, en því leggst Miðflokkurinn harðlega gegn og stendur Ringqvist áfram á því þrátt fyrir að vera opin því að semja við Sósíaldemókrata. 

Miðflokkurinn hefur einnig verið afdráttarlaus í þeirri afstöðu að þeir muni ekki starfa með Svíþjóðardemókrötum, en þeir tilkynntu að þeir hefðu fallið frá kröfu sinni um ráðherraembætti í síðustu viku.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅