Hversu oft á að skipta um kodda?

Góður koddi getur skipt miklu máli fyrir svefninn og stuðning við háls og höfuð. Ljósmynd/Unsplash

Koddinn er notaður á hverri einustu nóttu en margir eiga sama koddann árum saman án þess að velta því fyrir sér hvort kominn sé tími á nýjan. Endingartíminn er þó styttri en margir halda.

Almennt er mælt með því að skipta um kodda á eins til tveggja ára fresti, samkvæmt Sleep Foundation. Það fer þó eftir efni, gæðum og því hversu vel er farið með koddann.

Ástæðan er ekki aðeins hreinlæti. Með tímanum þjappast fyllingin saman og koddinn missir lögun sína og stuðning. Hann getur auk þess safnað í sig húðfitu, óhreinindum og ofnæmisvöldum.

Merkin sem segja að tími sé kominn á nýjan

Aldurinn einn segir þó ekki alla söguna. Ef koddinn er orðinn flatur, kekkjóttur eða heldur ekki lengur lögun sinni getur verið tímabært að skipta honum út.

Það sama á við ef hann hefur gulnað mikið eða veitir ekki lengur nægan stuðning. Ef þú vaknar reglulega með eymsli eða stífleika í hálsi getur það einnig verið merki um að koddinn sé kominn til ára sinna.

Almennt er miðað við að skipta um kodda á eins til tveggja ára fresti, svo það er kannski ekki ráðlegt að mynda of sterk tilfinningabönd við uppáhaldskoddann. Ljósmynd/Unsplash

Ekki allir koddar endast jafn lengi

Endingartími fer mikið eftir fyllingu. Pólýesterkoddar endast yfirleitt skemur en koddar úr latexi. Samkvæmt Sleep Foundation geta pólýesterkoddar verið orðnir slitnir innan árs á meðan vandaðir latexkoddar geta enst í þrjú til fjögur ár.

Regluleg umhirða getur líka lengt líftímann. Gott er að fylgja alltaf þvottaleiðbeiningum framleiðanda og nota koddaver eða sérstaka koddahlíf til að verja koddann.

Þótt eins til tveggja ára reglan sé ágætt viðmið ætti fyrst og fremst að horfa á ástand koddans. Ef hann er hættur að veita góðan stuðning er líklega kominn tími á nýjan.

Hvenær á að skipta um koddann?

  • Memory foam: um 2–3 ár. Best er að blettahreinsa eftir þörfum og handþvo varlega á um tveggja mánaða fresti.
  • Dúnn og fjaðrir: um 1–3 ár. Marga slíka kodda má þvo í vél á viðkvæmu prógrammi á 3–6 mánaða fresti.
  • Pólýester og gervidúnn: um 6 mánuðir–2 ár. Þvo má þessa kodda á 3–6 mánaða fresti en pólýesterkoddar endast almennt skemur.
  • Latex: um 2–4 ár. Best er að blettahreinsa eftir þörfum og handþvo á 2–3 mánaða fresti. Ekki ætti að setja latexkodda í þvottavél.
  • Koddaver: Þvo ætti koddaver að minnsta kosti einu sinni í viku og skipta því út á eins til tveggja ára fresti.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅