Englendingar fyrstir að vinna Spán í meira en tvö ár
England vann frábæran sigur á heims- og Evrópumeisturum Spánar, 3:2, í A-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta á Metro.politano-leikvanginum í Madríd í kvöld.
England vinnur þar með riðilinn en bæði lið enda með 15 stig í efstu tveimur sætunum. Spánn vann England 3:2 á Wembley en enska liðið er með betri markatölu og vinnur því riðilinn. Bæði lið fara áfram í átta liða úrslitin.
England er þá fyrsta liðið til að vinna Spán síðan Kólumbía gerði það í mars 2024 eða fyrir tveimur og hálfu ári.
Harry Kane kom Englandi yfir með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiksins og Ezri Konsa tvöfaldaði forystu Englendinga á 53. mínútu.
Fjórum mínútum síðar kom Ben White Englandi í 3:0 en á 63. mínútu fékk Elliot Anderson beint rautt spjald.
Spánverjar kveiktu á sér eftir það og Mikel Oyarzabal og Nico Williams minnkuðu muninn í 3:2 en nær komust heimsmeistararnir ekki.
Króatía vann Tékkland 2:1 og hafnar í þriðja sæti riðilsins með sex stig en Tékkland endar neðst með ekkert.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗