Varar við sumarfríinu á næsta ári – „Ég myndi hugsa mig vel um“

Dagarnir verða sífellt styttri og kuldinn hefur hafið innreið sína og svo kemur snjórinn og allt það sem fylgir vetrinum. Það er því kannski engin furða að margir séu farnir að huga að sumarfríinu á næsta ári en kannski er rétt að staldra aðeins við áður en fríið er pantað.

Þetta segir norski loftslagsvísindamaðurinn Kikki Kleiven.

„Ég myndi hugsa mig vel um áður en ég fer af stað. Þetta á sérstaklega við eldra fólk, sem glímir við heilsufarsvandamál, eða þá sem ferðast með lítil börn,“ sagði hún í samtali við Dagbladet og bætti við að hún myndi ekki leigja góða sumarleyfisíbúð í Grikklandi næsta sumar.

Þá vaknar spurningin – af hverju ekki? Ástæðan er einfaldlega hættan á að við munum upplifa svipaðar aðstæður á næsta ári og komu nokkrum sinnum upp á þessu ári.

Suður-Evrópa glímdi þá við miklar hitabylgjur, svo slæmar að margir gátu ekki verið utanhúss yfir daginn og yfirvöld vöruðu fólk einmitt við og sögðu að útivera gæti beinlínis verið hættuleg.

Kleiven, sem er forstjóri Bjerknes miðstöðvar háskólans í Björgvin (sem er rannsóknarmiðstöð í loftslagsmálum) sagði einnig að sumarið 2027 geti orðið óvenjulega heitt vegna áhrifa Ofur-El Nino en þau bætast við áhrif loftslagsbreytinganna.

El Nino veðurfyrirbærið verður til þegar yfirborðshiti sjávar í Kyrrahafinu er óvenjulega hár og nú eru þær forsendur til staðar.

Október var hlýjasti októbermánuður sögunnar og yfirborðshiti sjávar er hár því mánuðirnir á undan voru einnig hlýrri en venjulega.

Þegar heimshöfin hlýna, þá virka þau eins og rafhlaða sem heldur áfram að mynda hita og þetta heldur áfram eftir að El Nino er lokið

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅