Þeir sem segja annað eru líklegast að ljúga
„Ég ólst upp á Englandi og draumurinn er að spila þar einn daginn,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í fótbolta og leikmaður Köln, á blaðamannafundi í dag.
Ísak var spurður um fréttir af áhuga West Ham á sér í sumar og stöðu sína hjá þýska félaginu.
„Ég sá þetta líka. Ég er mjög ánægður hjá Köln. Við erum í smá brasi núna, rétt fyrir ofan fallsæti, og ég einbeiti mér að því að hjálpa liðinu sem mest.“
Hann leynir þó ekki áhuganum á ensku úrvalsdeildinni.
„Það er draumur allra að spila í ensku úrvalsdeildinni. Þeir sem segja annað eru líklegast að ljúga. Ég er á flottum stað í Köln og spila í þýsku úrvalsdeildinni viku eftir viku en maður stefnir alltaf hærra sem fótboltamaður.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗