Styrmir magnaður í spennuleik
Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson átti frábæran leik í sigri Rapid Búkarest á Craiova, 109:104, í rúmensku A-deildinni í körfubolta í Búkarest í kvöld.
Styrmir Snær skoraði 25 stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar á 38 mínútum spiluðum en leikurinn var framlengdur.
Rapid er í áttunda sæti deildarinnar með sex stig.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗