Óttast slitið krossband hjá landsliðsmanni
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, segir áhyggjur vera af meiðslum í íslenska hópnum eftir 5:0-sigurinn á Búlgaríu á föstudaginn.
Kristall Máni Ingason og Stefán Teitur Þórðarson fóru meiddir af velli. Spurður út í þá á blaðamannafundi í dag sagði Arnar að myndataka á morgun ætti að skýra stöðuna.
„Verstu fréttirnar væru náttúrulega krossbandsslit en við leyfum okkur ekki að hugsa svo langt. Við vonum það besta fyrir morgundaginn.“
Þrír leikmenn hafa verið kallaðir inn í hópinn fyrir leikinn gegn Lúxemborg.
„Við fengum góða menn inn í staðinn, sem betur fer. Hópurinn er stór og við fáum ferska menn inn.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗