Jóhanna Elín og Snorri Dagur með bestu afrekin
Íslands- og unglingameistaramótinu í 25 metra laug lauk í Ásvallalaug í kvöld. Fjögur sund á lokakvöldinu voru undir NM-lágmarki, og að móti loknu var tilkynnt hvaða 14 sundmenn keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandameistaramótinu í Vilníus 4.–6. desember.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar (SH) hlaut verðlaun fyrir besta afrek kvenna. Hún synti 50 metra skriðsund á 25,04 sem gaf 757 stig. Jóhanna heldur á NM í Vilníus í desember.
Snorri Dagur Einarsson (SH) hlaut verðlaun fyrir besta afrek karla fyrir 50 metra bringusund á 27,04, sem gaf 785 stig. Snorri heldur á HM í Peking síðar í mánuðinum.
Hólmar Grétarsson (SH) varð Íslandsmeistari í 400 metra fjórsundi á 4:18,33 og náði NM-lágmarki. Hann bætti tímann sinn frá því í morgun um rúmar tólf sekúndur. Magnús Víðir Jónsson (SH) fylgdi eftir góðu sundi í morgun og vann 200 metra skriðsund á 1:50,11, aftur undir NM-lágmarki.
Jóhanna Elín vann 100 metra flugsund á 1:00,59 og Bergur Fáfnir Bjarnason (SH) 100 metra baksund á 53,86. Bæði syntu undir NM-lágmarki. Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr Reykjavík kláraði mótið með því að vinna bæði 200 metra baksund og 200 metra fjórsund, eins og hún gerði í unglingaflokki í morgun.
SH vann báðar boðsundsgreinar kvöldsins, 4x100 metra fjórsund kvenna og karla.
Í lok móts var tilkynnt liðið sem fer á Norðurlandameistaramótið í 25 metra laug:
Konur:
Alicja Julia Kempisty (SH)
Eva Margrét Falsdóttir (ÍRB)
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH)
Snæfríður Sól Jórunnardóttir (Álaborg)
Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH)
Vala Dís Cicero (SH)
Karlar:
Alexander Ari Andrason (Ármann)
Aron Bjarki Pétursson (SH)
Bergur Fáfnir Bjarnason (SH)
Denas Kazulis (ÍRB)
Hólmar Grétarsson (SH)
Karl Björnsson (SH)
Magnús Víðir Jónsson (SH)
Símon Elías Statkevicius (SH)
Birnir Freyr Hálfdánarson og Snorri Dagur Einarsson keppa ekki á NM þar sem þeir verða á Heimsmeistaramótinu í 25 metra laug í Peking á sama tíma.
Íslandsmeistarar kvöldsins:
400 m fjórsund karla: Hólmar Grétarsson (SH) 4:18,33 – NM-lágmark
1500 m skriðsund kvenna: Katja Lilja Andriysdóttir (SH) 17:37,16
200 m baksund kvenna: Ylfa Lind Kristmannsdóttir (Reykjavík) 2:16,62
200 m skriðsund karla: Magnús Víðir Jónsson (SH) 1:50,11 – NM-lágmark
100 m flugsund kvenna: Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH) 1:00,59 – NM-lágmark
50 m flugsund karla: Símon Elías Statkevicius (SH) 24,23
50 m bringusund kvenna: Birgitta Ingólfsdóttir (SH) 32,55
200 m bringusund karla: Snorri Dagur Einarsson (SH) 2:16,45
100 m skriðsund kvenna: Alicja Julia Kempisty (SH) 57,49 - NM-lágmark unglinga
100 m baksund karla: Bergur Fáfnir Bjarnason (SH) 53,86 – NM-lágmark
200 m fjórsund kvenna: Ylfa Lind Kristmannsdóttir (Reykjavík) 2:19,54
800 m skriðsund karla: Árni Þór Pálmason (ÍRB) 8:41,03
800 m skriðsund karla, flokkur fatlaðra: Franciszek Adam Czachorowski (ÍRB) 10:08,52
4x100 m fjórsund kvenna: SH (Ema Austa Pratusyté, Birgitta Ingólfsdóttir, Nadja Djurovic, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir) 4:19,25
4x100 m fjórsund karla: SH (Bergur Fáfnir Bjarnason, Snorri Dagur Einarsson, Símon Elías Statkevicius, Birnir Freyr Hálfdánarson) 3:40,41
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
