Fjármálaráðherrann vill skýr svör frá Nvidia
Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, krefst þess að Nvidia útskýri hvort fyrirtækið hefði vísvitandi leyft fullkomnustu gervigreindarflögum sínum að berast til Kína.
Hann segir þetta atriði skipta meira máli en samband Jensens Huang, fráfarandi forstjóra Nvidia, við meintan kínverskan njósnara.
Huang sagði af sér sem forstjóri á miðvikudaginn eftir að upp komst um framhjáhald hans með hinum meinta njósnara Alice Huang, sem tengist fyrirtækinu Megaspeed í Singapúr.
Sala á fullkomnum flögum bönnuð
Í spjallþætti á bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox News í dag sagðist Bessent vilja vita hvort Nvidia hefði notað skúffufyrirtæki til að komast hjá bandarískum takmörkunum og selja öflugustu flögur sínar til Kína.
Bandaríkin banna sölu á fullkomnustu gervigreindarflögunum til Kína í von um að halda forskoti á Kínverja í kapphlaupinu um yfirráð á sviði gervigreindar.
Síðla árs í fyrra heimilaði Donald Trump forseti reyndar sölu á Nvidia-flögum sem nefnast H200 til Kínverja en ekki fullkomnustu flögunum sem notaðar eru til að keyra gervigreindarlíkön sem eru að umbylta nútímasamfélagi.
„Það sem skiptir meira máli hér er að kanna hvort hjá Nvidia hafi ríkt menning sem tók mið af því að fylgja bandarískum útflutningstakmörkunum,“ sagði Bessent.
Bessent sagðist vilja fá svör frá Nvidia og úr innri rannsókn fyrirtækisins á hegðun Huang innan næstu tíu daga.
Huang ber vitni ásamt ráðherra
Bandarísk stjórnvöld gruna Megaspeed um að hafa hjálpað kínverskum fyrirtækjum að komast fram hjá bandarísku útflutningseftirliti með því að kaupa Nvidia-flögur fyrir gagnaver sín í Suðaustur-Asíu og beina þeim til Kína.
Financial Times hefur greint frá því að fjórar alríkisstofnanir hafi þrýst á að Megaspeed yrði sett á svartan lista af viðskiptaráðuneytinu, sem Howard Lutnick stýrir, en að ráðuneytið hafi ekki orðið við því.
„Mörg önnur ráðuneyti þrýstu á þetta og viðskiptaráðuneytið hafði valdið,“ sagði Bessent og endurtók þar ummæli sín frá því á föstudag sem benda til klofnings innan ríkisstjórnar Trumps í málinu.
Öldungadeildarþingmenn hafa kallað Huang til að bera vitni fyrir bankanefnd deildarinnar í næsta mánuði. Lutnick hefur sjálfur einnig samþykkt að bera vitni. Jensen Huang hefur einnig samþykkt að bera vitni fyrir luktum dyrum í fulltrúadeildinni fyrir þakkargjörðarhátíðina.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗