Ekki margir sem vilja hálfan grís

Ævar er löngu búinn að missa tölu á fyrirspurnum til þeirra hjóna. Ljósmynd/Litli búgaðurinn

Bændurnir Ævar Austfjörð og Ása Sif Tryggvadóttir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa undanfarin ár selt kjöt af lausagöngugrísum sem þau ala og alltaf hefur selst upp. 

Fyrirspurnum um kjöt fjölgaði til muna eftir að myndefni og fréttaflutningur af aðbúnaði svína hjá Stjörnugrís fóru á flakk. Ákváðu þau í því tilfelli að birta Facebook-færslu til að draga úr fyrirspurnum. 

Færslan hafði hins vegar þveröfug áhrif. Fyrirspurnir hrúgast inn og nú hefur blaðamanni verið sigað á þau.

Dýravelferð og umhverfisvænar aðferðir

„Þetta er bara smábúskapur,“ segir Ævar í samtali við mbl.is en hjónin kalla búskap sinn Litla búgarðinn og leggja þar megináherslu á dýravelferð og umhverfisvænar aðferðir. Búskapurinn er aðeins aukabúgrein hjá þeim enda bæði í fullu starfi.

Í ljósi fyrirspurnanna ákváðu þau að birta umrædda færslu þar sem þau útskýrðu hvernig söluferlið færi fram og að ekkert kjöt væri fáanlegt. 

Ævar segir viðbrögðin hafa verið þveröfug við það sem hann hafði vonast eftir en eins og stendur hafa 150 þúsund manns séð færsluna og um 1.600 líkað við hana.

Þá sé hann löngu búinn að missa tölu á fyrirspurnum sem þau eru búin að fá í kjölfarið.

Svínakjöt er ekki það sama og svínakjöt

Á Litla búgarðinum ala hjónin upp undir tuttugu grísi á ári auk þess sem þau eru með naut, kjúklinga og ýmsa varpfugla.

„Það eru margir sem halda að svínakjöt sé bara svínakjöt. Það er það ekki. Það fer eftir því hvernig dýrin eru alin,“ segir Ævar.

Ævar Austfjörð og Ása Sif Tryggvadóttir.

Ævar Austfjörð og Ása Sif Tryggvadóttir. Ljósmynd/Litli búgarðurinn

Búskapurinn er frábrugðinn hefðbundnu svínaeldi enda ganga grísirnir lausir utandyra. 

„Okkar grísir eru úti en hafa skjól til að fara inn í þegar það er vindur og rigning. Þeir eru á grasi og éta gríðarlega mikið af grasi. Við gefum þeim nýjan grasblett á viku til tíu daga fresti,“ segir Ævar og ljóst er að þau hjónin leggja áherslu á að grísirnir fái að lifa sem eðlilegustu lífi.

„Þeir fá að gera allt sem grísir þurfa. Þeir róta með trýninu, leita sér að æti, rótum og skordýrum og hverju sem þeir vilja éta,“ segir hann.

Dýr í rekstri

Útivera og aukin hreyfing grísanna hafa þó sitt að segja. Ævar segir grísina éta rúmlega helmingi meira en grísir í hefðbundnu innieldi, meðal annars vegna þess að þeir þurfa að verja meiri orku í að halda á sér hita.

Þetta hefur í för með sér töluverðan kostnað og segir Ævar kjötið þeirra vera mun dýrara en það svínakjöt sem almennt fæst í verslunum. 

Kílóverðið á kjötinu frá Litla búgarðinum sé svo gott sem á pari við kílóverð nautakjöts. Hefðbundið svínakjöt í verslunum kostar gjarnan einungis um þriðjung af verði nautakjöts að sögn Ævars.

Vinnur kjötið sjálfur

Þá þarf viljinn að vera fyrir verki ætli fólk að versla kjöt af hjónunum enda selja þau ekki minni skammta en hálfan grís í einu.

„Það eru ekkert margir sem vilja panta hálfan grís,“ segir Ævar.

Hjónin taka við pöntunum í apríl ár hvert og er kjötið afhent í september þegar búið er að vinna það í hinar ýmsu kjötvörur. 

Ævar vinnur kjötið sjálfur.

Ævar vinnur kjötið sjálfur. Ljósmynd/Litli búgarðurinn

Ævar er kjötiðnaðarmaður og úrbeinar og vinnur kjötið sjálfur. Hann segist bjóða upp á ýmsar vörur á borð við hamborgarhrygg, beikon og snitsel. 

Hann segir marga sýna áhuga á að versla af þeim kjötið en hætta við þegar þeir átta sig á því hversu mikið magn er um að ræða. „Flestir segja bara: Ég borða ekki svona mikið svínakjöt,“ segir hann. 

Þá telur hann líklegt að flestir geri sér ekki grein fyrir þeim mun sem geti verið á kjötinu eftir því hvernig dýrin eru alin og leggi því síður í að greiða hærra verð.

Ráðgjafi að utan

Að baki búskapnum liggur hugmyndafræði sem nefnist auðgandi landbúnaður (e. regenerative agriculture) þar sem áhersla er lögð á að bæta gæði lands með náttúrulegum aðferðum. 

Lausaganga grísanna er þannig ekki einungis til þess að tryggja þeim sem bestu lífsgæði heldur gegna þeir einnig mikilvægu hlutverki í umhirðu landsins. 

Grísirnir róta í jarðveginum og vinna þannig landið með náttúrulegum hætti sem dregur úr þörfinni fyrir dráttarvélar. Þá nota þau hjónin engan annan áburð en það sem kemur frá dýrunum sjálfum. 

Hjónin búa að því að njóta ráðgjafar fyrrverandi prófessors við landbúnaðarháskóla í Bandaríkjunum sem Ævar segir hafa snúið baki við hefðbundnum aðferðum til að tileinka sér auðgandi landbúnað. 

Ráðgjafinn kom meðal annars hingað til lands á síðasta ári og tók þátt í lítilli ráðstefnu sem hjónin stóðu að ásamt vinahjónum þeirra. 

Ævar segir að fáir hafi jafn mikla trú á aðferðunum og þau. „Mörgum finnst þetta hálfasnalegt og segja að þetta virki ekki.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅