Segja lyfjasölu í verslunum geta hækkað lyfjaverð

Félag atvinnurekenda telur að almennar verslanir muni einkum bjóða söluhæstu og arðbærustu lausasölulyfin. Apótekin þurfi hins vegar áfram að standa undir föstum kostnaði vegna fagfólks, búnaðar og birgðahalds. Ljósmynd/Colourbox

Lyfjahópur Félags atvinnurekenda varar við að sala lausasölulyfja í almennum verslunum geti grafið undan rekstri apóteka og lyfjaútibúa á landsbyggðinni.

Félagið telur breytinguna jafnframt geta aukið dreifingarkostnað og leitt til hærra lyfjaverðs.

Þetta kemur fram í umsögn til velferðarnefndar Alþingis um frumvarp til breytinga á lyfjalögum. Félagið leggst alfarið gegn frumvarpinu og leggur til að því verði hafnað.

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sem heimila myndi sölu lausasölulyfja í almennum verslunum. Flutningsmenn segja aukið frelsi geta eflt samkeppni, stuðlað að lægra verði og bætt þjónustu. Jafnframt gæti breytingin styrkt rekstur verslana í dreifðum byggðum.

Óttast að rekstrargrundvöllur veikist

Félag atvinnurekenda telur að almennar verslanir muni einkum bjóða söluhæstu og arðbærustu lausasölulyfin. Apótekin þurfi hins vegar áfram að standa undir föstum kostnaði vegna fagfólks, búnaðar og birgðahalds.

Samkvæmt umsögninni treysta mörg lyfjaútibú í fámennum byggðarlögum á framlegð af lausasölulyfjum. Færist sú sala til annarra verslana geti útibú neyðst til að hætta starfsemi og aðgengi íbúa að lyfseðilsskyldum lyfjum versnað.

Félagið telur jafnframt að fjölgun sölustaða jafngildi ekki bættri heilbrigðisþjónustu. Í apótekum sé veitt fagleg lyfjaráðgjöf sem afgreiðslufólk almennra verslana hafi hvorki menntun né starfsaðstæður til að veita.

Sjálfval háð heimild Lyfjastofnunar

Samkvæmt frumvarpinu yrði óheimilt að hafa lausasölulyf í sjálfvali utan lyfjabúða nema með heimild Lyfjastofnunar.

Ráðherra yrði jafnframt heimilt að setja reglur um magn lyfja sem selja mætti einstaklingi á tilteknu tímabili, styrkleika og geymslu þeirra og lágmarksaldur afgreiðslufólks.

Í greinargerðinni kemur fram að Lyfjastofnun geti þegar veitt almennum verslunum undanþágu til sölu tiltekinna lausasölulyfja þar sem hvorki sé starfrækt lyfjabúð né lyfjaútibú. Með frumvarpinu yrði sala lausasölulyfja utan apóteka almennt heimil, með þeim takmörkunum sem þar er kveðið á um.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅