Ný uppfinning – Leysigeislar drepa mýflugur á 0,003 sekúndum

Pressan

Sunnudaginn 15. nóvember 2026 20:30

Mýfluga. Mynd: Getty Images

Lítið tæki sem drepur mýflugur á örskotsstund með aðstoð gervigreindar. Þetta tæki gæti orðið valkostur við mýflugnasprey og framleiðandi tækisins á nú mjög annríkt við að afgreiða mörg þúsund pantanir.

Mýflugur eru ekki skemmtilegar enda blóðsjúgandi dýr sem skilja mann eftir með kláða og þess utan geta þær truflað nætursvefninn ansi hressilega.

En nú ættu mýflugur heimsins að líta sér um öxl því ný kínversk uppfinning, sem drepur mýflugur, hefur mikinn meðbyr og mörg þúsund tæki hafa verið pöntuð. Eins og svo margt í nútímatækni þá kemur gervigreind við sögu í tækinu.

Með því að nota sömu tækni og er notuð í sjálfkeyrandi bílum hefur kínverska fyrirtækið Photon Matrix Lab þróað tæki sem getur á aðeins 0,003 sekúndum skorið úr um hvort fluga sé mýfluga og brennt vængi hennar með leysigeisla.

Gervigreind er notuð til að skera úr um hvenær óhætt er að skjóta leysigeislanum að sögn The New York Times sem var viðstatt kynningu á tækinu í höfuðstöðvum Photon Matrix í Kína.

Tækið hefur fengið nafnið „The Laser Mosquito Air Defense System“. Tækið kostar sem nemur um 120.000 krónum svo það er nú líklegast í dýrari kantinum ef maður vill fá sér eitt slíkt í svefnherbergið.

Leysigeislar eru eins og kunnugt er ekki alveg hættulausir. Þeir geta valdið alvarlegum augn- og húðskaða. The New York Times segir að Photon Matrix notist við efsta leysigeislaflokkinn, flokk 4, í tækinu. Þessi flokkur er alla jafna ætlaður iðnfyrirtækjum og miklar öryggiskröfur eru gerðar í tengslum við hann.

Til að minnka líkurnar á að geislarnir skaði fólk er tækið með myndavél sem getur, með aðstoð gervigreindar, séð hvort dýr eða manneskja sé nærri geislanum.

Photon Matrix segir nú unnið að því að fá tilskilin leyfi til að selja tækið í Bandaríkjunum og Evrópu.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅